Vetur í kvikmyndabransanum
„Það merkir að það er pínu vetur í kvikmyndabransanum. Kvikmyndum hefur fækkað gríðarlega, þrengst hérna innanlands sem og erlendis,“ segir Gunnar Sigurðarson, viðskiptastjóri Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda (SÍK) hjá SI, í frétt Vísis um kosningaúrslit til stjórnar SÍK. Hann segir að sjaldan hafi verið svona mikill áhugi á að komast í stjórn félagasamtaka eins og kvikmyndaframleiðenda.
Gunnar segir í frétt Vísis að mikil eindrægni hafi verið meðal fundarmanna og allir hafi verið sammála og samstíga um að það væri hart í ári. „Við erum að mennta fólk í þessu. Við Íslendingar erum ægilega fín þjóð þegar kemur að frásögn og að segja sögur, skrifa bækur, segja sögur, nú kunnum við að búa til myndir. En það skortir fjármagn. Það er skelfileg staða, hvort sem við erum með rafvirkja eða að mennta fólk í fræðum sem það getur ekki unnið við. Ég hef fulla trú á því að allir átti sig á því að við megum ekki hætta að segja sögur, við elskum öll íslenska sjónvarpsþætti og myndir. Þetta skilja allir.“
Í fréttinni kemur fram að erfitt ástand í kvikmyndageiranum sé ekki bara bundið við Ísland eitt, það sé erfitt líka erlendis sem sýni sig í því að hingað komi færri verkefni en verið hafi. „Þetta er skelfilegt ástand en gaman hversu samstíga hópurinn var. Allir vilja bransanum vel.“
Á vef Vísis er hægt að lesa fréttina í heild sinni.
Vísir, 19. júní 2026.

