Lækkun virðisaukaskatts á matvæli gæti hjálpað til
Við hjá landbúnaðinum höfum bent stjórnvöldum á að OECD hefur ráðlagt Íslandi að lækka virðisaukaskatt á matvæli segir Sigurður Helgi Birgisson, viðskiptastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði hjá Samtökum iðnaðarins, í fréttum RÚV. „Við höfum bent á að lækkun virðisaukaskatts á matvæli gæti hjálpað til við að lækka verð í því árferði sem er núna. Við erum með einn hæsta virðisauka á matvæli innan OECD-ríkjanna.“
Í fréttinni kemur fram að verð á matvöru á Íslandi sé með því hæsta sem þekkist í Evrópu. Sigurður Helgi segir að launaþróun hafi veruleg áhrif á framleiðslukostnað. „Eins og staðan er í dag þá hafa allir undirliggjandi þættir í framleiðslu hækkað, laun, húsnæði, opinber gjöld, aðföng, fjármagnskostnaður, verðbólga, raungengi og orkukostnaður. Allt skiptir þetta gífurlegu máli fyrir innlenda framleiðslu sem er viðkvæm.“ Þá kemur fram í fréttinni að hann segir landbúnaðarframleiðslu viðkvæma, hún þurfi mikið af aðföngum og sé tímafrek. Þá geri miklar sveiflur og stöðugar hækkanir það að verkum að erfitt sé að tempra verð til lengri tíma.
RÚV, 11. júní 2026.

