Fréttasafn



25. jún. 2026 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Samtök fyrirtækja í landbúnaði

Matvælaverð þarf að ræða í samhengi að mati SAFL

Samtök fyrirtækja í landbúnaði birta heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu í dag með yfirskriftinni Matvælaverð þarf að ræða í samhengi. Þar benda samtökin á að matarverð á Íslandi sé talsvert hærra en gengur og gerist í Evrópu en verðið í búðinni segi ekki alla söguna. Samtökin segja að mikilvægt sé að horfa á heildarmyndina sem séu tekjur, neysla og vægi matar í heimilisbókhaldinu. Íslensk heimili nýti svipað eða lægra hlutfall af tekjum sínum í matarinnkaup en heimili víðsvegar í Evrópu. Í auglýsingunni er birt tölfræði frá Eurostat sem sýnir hve stór hluti útgjalda heimila fer í mat og óáfenga drykki og þá sést að á Íslandi er hlutfallið 12,9% sem er á svipuðu róli og hin Norðurlöndin og undir meðaltali í Evrópusambandinu.

Safl-4_auglysing-nr-2