Umbúðaregluverk ESB til umræðu á vorfundi Matvælaráðs SI
Umbúðareglugerð ESB (Packaging and Pakaging Waste Reglulation EU 2025/40) var til umfjöllunar á vorfundi Matvælaráðs SI sem fór fram í Húsi atvinnulífsins 27. maí sl. Til reglugerðarinnar er gjarnan vísað til með skammstöfuninni PPWR. Á fundinum var farið yfir hvaða breyttu kröfur hið nýja regluverk boðar en um er að ræða umfangsmestu breytingar á umbúðareglum innan Evrópusambandsins í 30 ár. Reglugerðin hefur þegar verið innleidd í Evrópurétt innan ESB ríkja og kemur til framkvæmda í ágúst 2026. Reglugerðin hefur ekki enn verið tekin upp í EES-samninginn en ætlast er til að svo verði þar sem kröfurnar varða allar umbúðir um vörur á innri markaði sambandsins.
Sigurður Helgi Birgisson, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, fór yfir helstu breytingar reglugerðarinnar og Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, fór yfir stöðu málsins í sameiginlegu EES-nefndinni sem og afstöðu og vinnu Business Europe vegna málsins.
Helstu breytingarnar varða m.a. bann við tilteknum efnum í umbúðum sem snerta matvæli, þar á meðal svokölluðum „eilífðarefnum“ eða PFAS. Þá þurfa umbúðir að vera hannaðar fyrir endurvinnslu og verða flokkaðar eftir samsetningu sem gerir ráð fyrir hærri úrvinnslugjöldum á umbúðir með lága einkunn og umbúðir undir vissum mörkum verða bannaðar.
Einnig eru lagðar fram kröfur um lágmarkshlutfall endurunnins plasts í innihaldi plastumbúða og verða matvælaframleiðendur að útvega vottun frá umbúðaframleiðendum og birgjum um að kröfur séu uppfylltar. Einnig eru settar fram reglur um lágmörkun umbúða, bann við háu hlutfalli lofttæmis í umbúðum sem og bann við notkun plasts við sölu á ávöxtum og grænmeti, sem þó er gert ráð fyrir einhverjum undantekningum á.
Ein umfangsmesta breytingin sem felst í reglugerðinni er þó skilyrði um aukin hlutföll umbúða í endurnotkun og endurnýtingu á markaði. Leiða skilyrðin til þess að hér á landi þurfi eflaust að taka upp tvöfalt kerfi fyrir drykkjarvörur þar sem endurnotkunarkerfi með tilheyrandi hreinsistöðvum, flutningum og utanumhaldi mun bætast við núverandi endurvinnslu- og skilagjaldskerfi.
Úrvinnslusjóður og heilbrigðiseftirlit
Einnig voru til umræðu málefni er varða Úrvinnslusjóð og voru félagsmenn hvattir til að sækja fund atvinnulífsins og Úrvinnslusjóðs þar sem hefja á samtal um sviðsmyndir og möguleika á breyttu fyrirkomulagi, en fundurinn mun fara fram í Húsi atvinnulífsins þann 8. júní nk. og má nálgast allar upplýsingar og skráningu hér.
Þá var einnig farið yfir tvö lagafrumvörp sem eru til meðferðar á Alþingi og varða breytingar á eftirliti með umhverfisþáttum og matvælum, en þar er lagt upp með að leggja niður svæðisbundin heilbrigðiseftirlit og eftirlit með umhverfisþáttum og útgáfa starfsleyfa verði hjá Umhverfis- og orkustofnun en eftirlit með matvælum færist að öllu til Matvælastofnunar, eða arftaka hennar verði af sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.
Matvælaráð Samtaka iðnaðarins er samstarfs- og samráðshópur matvælaframleiðenda innan samtakanna. Fulltrúar aðildarfyrirtækja SI sem tilnefndir voru í ráðið 2025-2026 eru Anna Fríða Gísladóttir hjá Nóa Siríus, Aðalsteinn H. Magnússon hjá Mjólkursamsölunni, Guðmundur Stefánsson hjá Matís, Oddný Anna Björnsdóttir hjá Geislar Gautavík og Sigrún Hallgrímsdóttir hjá Coca-Cola Europacific Partners.
Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI.
Sigurður Helgi Birgisson, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI.

