Ný stjórn Tannsmiðafélags Íslands
Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Tannsmiðafélags Íslands sem fór fram í Húsi atvinnulífsins fyrir nokkru. Á fundinum var farið yfir starf undangengins árs en þar bar hæst Tannsmiðadagurinn og árshátíð ásamt málefnum um faglega aðgreiningu heilbrigðisstétta. Sköpuðust líflegar umræður um stöðu mála sem bersýnilega verður áfram í deiglunni á núverandi starfsári.
Þá var kjörin stjórn félagsins, en Guðrún Tinna Valdimarsdóttir gaf áfram kost á sér til stjórnarformennsku og þær Ásthildur Þóra Reynisdóttir og Snædís Sveinsdóttir gáfu einnig kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Hlutu þær allar kjör.
Tveir nýir stjórnarmenn voru kjörnir en þær Fanndís Hjálmarsdóttir og Sonja Rut Davíðsdóttir koma nýjar inn í stjórn. Taka þær sæti í stað Evu Guðríðar Guðmundsdóttur og Markus Menczynski, sem gáfu ekki áfram kost á sér eftir áralanga stjórnarsetu. Þeim eru færðar kærar þakkir fyrir sín mikilvægu störf í þágu félagsins.
Að fundi og formlegheitum loknum var blásið til óvissuferðar með tilheyrandi skemmtun.

