Fyrsti fundur aðildarfyrirtækja SI í hugbúnaðarþróun
Fyrsti fundur aðildarfyrirtækja SI í hugbúnaðarþróun eftir endurskipulagningu Tækni- og hugverkaráðs SI fór fram í Húsi atvinnulífsins þann 26. maí. Á fundinum komu fulltrúar aðildarfélaga saman til að hlýða á stutt og hagnýt erindi ásamt því að ræða sameiginlegar áskoranir og tækifæri greinarinnar með óformlegum hætti.
Anna Katrín Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Alfreðs og forsvarsmaður hugbúnaðarþróunar í Tækni- og hugverkaráði SI, fjallaði um hlutverk og vægi hugbúnaðarfyrirtækja innan ráðsins.
Tómas Eiríksson og Jóhannes Eiríksson, stofnendur Lagavita, deildu reynslu sinni af því að byggja upp fyrirtæki með nýjustu (blæðandi) tækni og þær áskoranir sem því fylgja.
Loks greindi Jóhann Guðbjargarson, stofnandi PLAIO, frá hagnýtingu gervigreindar í daglegum rekstri og hvernig PLAIO hefur nýtt Claude Code til þess að hanna sérsniðið umhverfi fyrir alla ferla fyrirtækisins.
Að erindum loknum sköpuðust líflegar umræður meðal gesta þar sem þátttakendur miðluðu reynslu sinni og ræddu stöðu og framtíð hugbúnaðariðnaðarins á Íslandi. Almenn ánægja var með framtakið og stefnt er að því að halda sambærilega viðburði reglulega þar sem aðildarfélög SI fá tækifæri til að miðla þekkingu, reynslu og áhugaverðum verkefnum sín á milli.
Tómas Eiríksson og Jóhanness Eiríksson hjá Lagavita.
Jóhann Guðbjargarson hjá PLAIO.

