Fréttasafn



26. jún. 2026 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Samtök fyrirtækja í landbúnaði

Umræðuskjal SKE hvorki vandað né eykur skýrleika í umræðunni

Að mínu viti þá er þetta innlegg þeirra eiginlega hvorki vandað né til þess fallið að auka skýrleika í umræðunni segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði (SAFL), í útvarpi Bændablaðsins þar sem rætt er við hana og Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu, um matvælaverð á Íslandi og þann samanburð við matvælaverð í Evrópu sem Samkeppniseftirlitið (SKE) setti fram í umræðuskjali þar sem kemur fram að matvöruverð á Íslandi sé meðal þess hæsta í Evrópu. Margrét segir að umræðuskjalið sé sannarlega innlegg en SAFL hafi margt við það að athuga. Hún segir að strax hafi verið sett fram mjög hörð gagnrýni á það bæði hvernig gögn séu framsett og eins hvaða aðferðafræði hafi verið notuð við vinnslu þessa umræðuskjals. „En við munum bara koma okkar athugasemdum inn til Samkeppniseftirlitsins eins og þeir hafa óskað eftir.“ 

Margrét nefnir meðal annars að það sé mjög villandi að vera að taka krónutölu á einhverri steik, hún kosti þetta á Spáni og þetta á Íslandi. Hún segir að það sé ekkert hægt að bera þetta saman vegna þess að það verði að taka inn kaupmátt einstaklinganna á Spáni, launin þar, undir hvaða kringumstæðum varan sé unnin, og þannig meta hvort varan sé dýr eða ekki. Hún segir jafnframt að það sé gríðarlega mikilvægt að það sé skoðað samhliða launakostnaður og kaupmáttur almennt og svo matvörukaup og líka hvernig verð á matvöru sé í samanburði við almennt verðlag í landinu. „Og þar sjáum við að við erum bara nákvæmlega á sama stað og hin Norðurlöndin.“ Hún segir að til dæmis þegar borið sé saman hlutfallsleg útgjöld heimilanna sem renni til kaupa á matvöru þá sé Ísland á sama stað og hin Norðurlöndin með 12,9% og undir meðaltali Evrópusambandsins sem sé 13,2%.

Á vef Bændablaðsins er hægt að nálgast hlaðvarpsþáttinn og hlusta á viðtalið í heild sinni.

Bændablaðið, 19. júní 2026.