Kerecis veitir viðurkenningar
Atvinnugreinar sem byggja á hugviti, nýsköpun og hugverkarétti vaxa nú hraðar en nokkur annar hluti útflutningshagkerfisins. Með réttum ákvörðunum gætu þær orðið verðmætasta útflutningsstoð Íslands áður en þessum áratug lýkur. Þetta kom meðal annars fram í ávarpi Sigurðar Hannessonar, framkvæmdastjóra SI, á viðurkenningarhátíð Kerecis í Grósku 11. júní. Hann sagði þessa þróun ekki vera tilviljun heldur afrakstur markvissrar atvinnustefnu sem hafi skapað hagstætt umhverfi fyrir nýsköpun og mætt frumkvæði og krafti frumkvöðla sem vilji gera framtíðarsýn sína að veruleika og að Kerecis væri einstakt dæmi um hvað hægt væri að áorka þegar þessir tveir kraftar komi saman. Sigurður sagði Kerecis sannarlega vera fyrirmyndarfyrirtæki, reksturinn hafi verið farsæll en stærsti árangur fyrirtækisins fælist í því að hafa bætt líf þúsunda einstaklinga. Frá litlum bæ á Vestfjörðum hafi fiskroð, sem áður var talið úrgangur, verið umbreytt í lækningalausn sem græði sár um allan heim – með vísindum, hugviti og mikilli vinnu. Hann sagði Kerecis jafnframt vera táknmynd stærri breytinga, hagkerfis í umbreytingu. Lengst af hafi velmegun Íslands byggst á nýtingu náttúruauðlinda; fiskimiðum, orku og því sem landið og hafið gáfu af sér. Sú undirstaða sé enn mikilvæg en sá útflutningur sem vaxi hraðast í dag sé ekki auðlind sem hægt sé að veiða eða vinna úr jörðu. Sigurður sagði það vera þekkingu og hugvit.
Arctic Midnight Sun Surgical Workshop er hluti af fræðslustarfi Kerecis þar sem yfir 200 þátttakendur deila nýjustu klínísku tilfellunum og nýstárlegri notkun fiskroðsígræðslna Kerecis. Í Grósku voru veittar viðurkenningar Aurora Clinical Excellence.
Myndir/BIG
Á myndinni má sjá Guðmund Fertram Sigurjónsson, forstjóra Kereceis, og Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra SI, með viðurkenningarhöfum.





