Fréttasafn



7. júl. 2026 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Samtök fyrirtækja í landbúnaði

Umræðuskjal SKE gefur villandi mynd af matvælaverði á Íslandi

Samtök iðnaðarins og Samtök fyrirtækja í landbúnaði hafa skilað sameiginlegri umsögn um umræðuskjal Samkeppniseftirlitsins um dagvöruverð á Íslandi. Samtökin taka undir mikilvægi þess að fram fari reglubundnar og faglegar greiningar á verðmyndun og samkeppni á dagvörumarkaði en telja að umræðuskjalið sé haldið verulegum aðferðafræðilegum ágöllum og gefi villandi mynd af þróun matvælaverðs hér á landi.

Í umsögninni benda samtökin á að greining Samkeppniseftirlitsins byggi fyrst og fremst á samanburði á nafnverði matvæla milli landa án þess að taka tillit til mikilvægra þátta á borð við launaþróun, kaupmátt, verðmætasköpun og kostnaðarumhverfi íslenskrar matvælaframleiðslu. Að mati samtakanna leiðir slíkt til skekktrar myndar af stöðu íslenskra neytenda og fyrirtækja.

Samtökin benda meðal annars á að kaupmáttur ráðstöfunartekna hafi aukist mest á Íslandi meðal samanburðarlanda á síðustu árum og að hlutfall útgjalda heimila til matvælakaupa sé sambærilegt eða lægra en víða annars staðar í Evrópu. Þá hafi matvælaverð á Íslandi lækkað í hlutfalli við laun frá árinu 2020 á meðan þróunin hafi víðast hvar verið öfug í Evrópu.

Í umsögninni er jafnframt gagnrýnt að Samkeppniseftirlitið taki ekki nægilegt tillit til undirliggjandi kostnaðarþátta sem hafi áhrif á verðmyndun, svo sem verulegrar hækkunar launakostnaðar, aukins fjármagns- og flutningskostnaðar, opinberra gjalda og smæðar íslenska markaðarins. Þá sé einnig dregin upp villandi mynd af verðþróun mjólkurvara og lambakjöts þar sem ekki sé tekið nægilegt tillit til lögbundinnar verðlagningar mjólkurvara og samdráttar í framboði lambakjöts.

Samtök iðnaðarins og Samtök fyrirtækja í landbúnaði leggja áherslu á að raunhæfar aðgerðir til að lækka matvælaverð felist meðal annars í lækkun virðisaukaskatts á matvæli, lækkun opinberra gjalda og eftirlitskostnaðar, auk annarra aðgerða sem draga úr rekstrarkostnaði fyrirtækja.

Í niðurstöðu umsagnarinnar skora samtökin á Samkeppniseftirlitið að endurskoða aðferðafræði sína og byggja endanlega skýrslu á hlutlægum, traustum hagfræðilegum greiningum. Samtökin lýsa jafnframt yfir vilja til áframhaldandi samtals við eftirlitið um leiðir til að efla samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu og stuðla að lægra matvælaverði neytendum og atvinnulífi til hagsbóta. 

Hér er hægt að nálgast umsögn samtakanna í heild sinni.