Fréttasafn



22. maí 2026 Almennar fréttir Félag húsgagnabólstrara Iðnaður og hugverk

Ný stjórn Félags húsgagnabólstrara

Á aðalfundi Félags húsgagnabólstrara sem fram fór í Húsi atvinnulífsins í vikunni var ný stjórn félagsins kjörin til starfa fyrir komandi starfsár. Berglind Hafsteinsdóttir var kjörin formaður félagsins, Sigurrós María Sigurbjörnsdóttir tekur við embætti gjaldkera og Ásdís Birgisdóttir var kjörin ritari.

Jafnframt var samþykkt að Grétar Árnason taki sæti sem varamaður í stjórn og Birgir Karlsson verði einnig í varastjórn félagsins.

Á fundinum fór einnig fram kosning endurskoðenda og fastra nefnda félagsins. Þá var rætt um undirbúning afmælisárs félagsins, en eftir tvö ár fagnar Félag húsgagnabólstrara 100 ára afmæli. Af því tilefni verður sérstök afmælisnefnd skipuð til að vinna að undirbúningi hátíðarhalda og viðburða tengdum tímamótunum.

Ný stjórn tekur nú við störfum á mikilvægu tímabili fyrir greinina, þar sem áfram verður lögð áhersla á að efla fagið, styðja við félagsmenn og styrkja stöðu iðngreinarinnar innan íslensks atvinnulífs.