Fréttasafn



1. jún. 2026 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Mannvirki

Stjórn SI heimsótti Vesturland

Stjórn ásamt framkvæmdastjóra og yfirlögfræðingi Samtaka iðnaðarins heimsóttu fjölda fyrirtækja á ferð sinni um Vesturland 28.-29. maí. 

Hópurinn lagði fyrst leið sín á Grundartanga þar sem heimsótt voru fyrirtækin Norðurál, Elkem og Meitill GT Tækni. Bæði Norðurál sem framleiðir ál og Elkem sem framleiðir kísiljárn eru meðal stærstu útflutningsfyrirtækja landsins en lágt kolefnisspor í framleiðslu hefur veitt þeim samkeppnisforskot á alþjóðamörkuðum. Í heimsóknunum var meðal annars farið yfir áskoranir í starfsemi fyrirtækjanna bæði hér á landi og í breyttum heimi alþjóðaviðskipta. Meitill GT Tækni þjónustar viðskiptavini einna helst í nærumhverfi sínu á sviði málma-, véla-, rafmagns- og farartækja. Starfsemin felur í sér framleiðslu, nýsmíði, endurnýjun, uppsetningu búnaðar, breytingar, viðgerða og viðhaldsverkefni. 

Frá Grundartanga var ferðinni heitið á Akranes þar sem fyrirtækin KAPP Skaginn, Rafpro og Blikksmiðja Guðmundar voru heimsótt. KAPP Skaginn er íslenskt tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í kæliþjónustu, framleiðslu, sölu og þjónustu á búnaði fyrir sjávarútveg, fiskeldi og annan iðnað. Rafpro þjónustar einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir á öllum helstu sviðum rafmagns. Hjá Rafpro starfa bæði raflagnahönnuðir og rafverktakar sem taka að sér jafnt stór og smá verk. Blikksmiðja Guðmundar sér um smíði og uppsetningu á loftræstikerfum, rennum, niðurföllum, klæðningum og þökum.

Í Borgarnesi átti hópurinn fund með Samtökum Sveitarfélaga á Vesturlandi þar sem farið var yfir atvinnuþróun á svæðinu, nýsköpunarstarfsemi og stöðu innviða og þá sér í lagi vegakerfi og raforkumál. Þá heimsótti hópurinn Límtré Vírnet sem er íslenskt iðnfyrirtæki sem byggir starfsemin á margreyndum framleiðsluferlum fyrir íslenskan byggingariðnað.

Eftirtaldir úr stjórn og starfsmannahópi SI voru í ferðinni: Þorsteinn Víglundsson, formaður SI, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Bergþóra Halldórsdóttir hjá Borealis Data Center, Hjörleifur Stefánsson hjá Nesraf rafverktökum, Jón Eðvald Malmquist hjá Eykt, Sigríður H. Hrafnkelsdóttir hjá Nóa Síríus, Sigrún Helgadóttir hjá Norðuráli, Sigurjón R. Rafnsson hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, Sigþór H. Guðmundsson hjá Controlant, og Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI.

MeitillFyrir utan fyrirtækið Meitill GT Tækni á Grundartanga, talið frá vinstri, Sigþór H. Guðmundsson, Bergþóra Halldórsdóttir, Sigrún Helgadóttir, Sigurður Hannesson, Gylfi R. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Meitils, Þorsteinn Víglundsson, Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, Sigurjón Rúnar Rafnsson, Hjörleifur Stefánsson, Jón Eðvald Malmquist, Ingvar Svavarsson, Friðrik Veigar Guðjónsson og Helga Sif Halldórsdóttir. 

Elkem_1780323557200Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem, fór yfir starfsemi fyrirtækisins og helstu áskoranir.  

Limtre-VirnetStefán Árni Einarsson, forstjóri Límtré Vírnets, tók á móti hópnum. 

Samtok-sveitarfelaga-a-VesturlandiPáll Snævar Brynjarsson hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi fór yfir atvinnuþróun og hvað væri helst fram undan á svæðinu. 

Blikksmidja-GudmundarHjá Blikksmiðju Guðmundar tóku á móti hópnum þeir Emil Kristmann Sævarsson og Ingi Björn Róbertsson. 

KappStarfsmenn hjá KAPP Skaganum og Rafpro fylgdu hópnum í kynnisferð.

Stjórn og starfsmenn SI fengu viðeigandi hlífðarbúnað hjá Norðuráli þar sem Sigrún Helgadóttir, forstjóri fyrirtækisins sem jafnframt er stjórnarmaður SI, tók á móti hópnum.