Stjórn Málms endurkjörin
Stjórn Málms - samtaka fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði, var endurkjörin á aðalfundi Málms sem fram fór í lok maí. Formaður til tveggja ára er Daníel Óli Óðinsson, JSÓ ehf. Meðstjórnendur eru Eðvarð Ingi Björgvinsson, Héðni hf., Guðmundur Hannesson, Kælismiðjunni Frost ehf., Ingólfur Þór Ævarsson, Marel hf., Páll Kristjánsson, Slippnum Akureyri ehf., Ólafur R. Guðjónsson, Vélsmiðju Ólafs R. Guðjónssonar ehf., Ólafur Ormsson, Vélsmiðju Orms og Víglundar ehf., Rannveig Jónsdóttir, Ferro Zink hf. og Sigurður Jónsson, G. Skúlasyni ehf.
Á fundinum var ársskýrsla Málms flutt þar sem fjallað var um helstu verkefni og störf stjórnar á liðnu starfsári. Þá var ársreikningi og fjárhagsáætlun gerð skil.
Stjórn heimsótti á starfsárinu Verkmenntaskólann á Akureyri og Fjölbrautaskóla Norðurlands-vestra til þess að fræðast um starfsemi skólanna og kanna hvort námsefni sem Málmur stóð fyrir útgáfu á væri nýtt í kennslu. Stjórn hafði áður heimsótt Tækniskólann og Borgarholtsskóla. Fulltrúi stjórnar, Ólafur Ormsson, tók sæti í stjórn Iðunnar fræðsluseturs á starfsárinu og hefur stjórn unnið að hagsmunamálum málm- og véltækniiðnaðar með áherslu á mennta- og réttindamál, m.a. í sambandi við opnun námsbrautar Tækniskólans í kæli- og frystivélvirkjun. Formaður og viðskiptastjóri Málms funduðu með norrænum samtökum iðntæknifyrirtækja í lok ágúst 2025 í Siirka, Norður-Finnlandi, þar sem staða, áskoranir og áherslumál iðnaðarins voru rædd.
Að loknum aðalfundarstörfum hélt Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, erindi um efnahagsmál og stöðu iðnaðar.
Frá vinstri talið, Páll Kristinsson, Benedikt Bárðason, skólastjóri Verkmenntaskólans á Akureyri, Daníel Óli Óðinsson, Guðmundur H. Hannesson, Ingólfur Þór Ævarsson, Ólafur Ormsson og Rannveig Jónsdóttir. Á myndina vantar Eðvarð Inga Björgvinsson, Ólaf R. Guðjónsson og Sigurð Jónsson,

