Fréttasafn



11. maí 2026 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Snertipunktar er yfirskrift dags prents og hönnunar

Snertipunktar - Dagur prents og hönnunar verður haldinn miðvikudaginn 13. maí í húsnæði Iðunnar fræðsluseturs að Vatnagörðum 20 í Reykjavík kl. 15.30-20.00.  Þar verður kastljósinu beint að styrkleikum prents í stafrænum heimi og því hvers vegna prent heldur áfram að skipta máli og er mikilvægur snertipunktur við fólk.

Dagskráin hefst kl. 16:00 með fyrirlestrum og vinnusmiðjum í fjórum stofum, þar sem farið verður yfir hugmyndir, þróun og tækifæri í prent- og hönnunargeiranum. Samhliða opnar birgjagólf, þar sem fyrirtæki kynna tæki, efni og lausnir og gefa gestum tækifæri til að kynnast því nýjasta.

Að lokinni fræðsludagskrá kl. 18:30 tekur við skemmtileg kvöldstund þegar Ari Eldjárn stígur á svið með uppistand. Kvöldinu lýkur með léttum veitingum, tónlist og góðu spjalli.

Bakhjarlar Dags prents og hönnunar í ár eru: Prentmet Oddi hf, Gunnar Eggertsson hf, SI, Landsprent, Aton og GRAFÍA.

Dagskrá

16:00 Hátíðin sett! Vilborg Helga Harðardóttir, framkvæmdastjóri Iðunnar og Kristjana Björg Guðbrandsdóttir, leiðtogi prent- og miðlunargreina bjóða gesti velkomna.

16:25 Sjálfbærni prentaðra fjölmiðla - Gundula Ullah frá Funke Media talar um sjálfbærni prents hjá þýska fjölmiðlarisanum Funke Media sem gefur út tugi vinsælla blaða og tímarita í Þýskalandi. Hvers vegna er mikilvægt að halda úti prentuðum fjölmiðlum?

16:45 Masterclass frá Fogra  - Moritz Feil frá Fogra Institute fjallar um litastillingar og stýringar í stafrænni prentun. ISO staðla, ECG litastillingar, tækifæri í gæðamálum og námið hjá Fogra sem Iðan er að þróa samstarf um. 

17:00 Hvað gerðum við 85 ára gamalli móður minni?  - Sigurjón Ólafsson hjá Funksjón stafrænni ráðgjöf fjallar um það hvernig stafræna væðingin fór langt fram úr sér og skrefin sem við þurfum að taka til baka. 

17:00 Góð prentun fyrir Góðan punkt - Reynir Traustason fjölmiðlamaður og útgefandi fjallar um útgáfufyrirtækið sitt Góðan punkt og áratugalangt samstarf sitt við íslenskar prentsmiðjur. 

17:15 Spjaldanna á milli - Nemendur Tækniskólans fjalla um verkefnið Spjaldanna á milli og hvers vegna nýsköpunarverkefni um sjálfbærni og varðveislu vinnuaðferða í bókbandi skipta máli. 

17:30 Allt breytist! - Gunnar Sigurðsson hjá SI og Díana Sigurfinnsdóttir frá Prentmet Odda fjalla um breytingar sem eru að verða á reglugerðum og mörkuðum úti í heimi. Hvað getum við gert hér heima? Eru falin tækifæri í breytingunum?

17:40 Spjall við hönnunarstjóra og hönnuð Aton - Siggi Odds hönnunarstjóri Aton og Hólmfríður Benediktsdóttir leturhönnuður hjá Aton halda erindi.

18:00 Prentmenning- af hverju er mikilvægt að varðveita hana? - Málfríður Finnbogadóttir hjá Prentsögusetri ræðir um mikilvægi prentmenningar fyrir lýðræðið og segir frá merkilegri uppbyggingu í Skálholti.

18:15 Framtíð vörumerkjastaðla - Björgvin Pétur Sigurjónsson prentsmiður og hönnunarstjóri frá Jökulá með innslag.

18: 30 Ari Eldjárn - Ari Eldjárn stígur á stokk og fer með gamanmál. Veitingar og tónlist.

SÝNINGARSVÆÐI Í SAL

Birgjasvæði opnar 15:30 þar sem eftirtaldir kynna þjónustu sína, vörur og nýjungar.

  • Halldór Eldjárn kynnir Veðurkort prentuð í Svansprenti. Hægt verður að panta veðurkort á staðnum.

  • Gunnar Eggertsson hf. kynnir þjónustu sína og vöruframboð.

  • Tækniskólinn kynnir nýtt nám í prentgreinum og breytingar á námi. Nemendur Tækniskólans kynna þar einnig nýsköpunarverkefnið Spjaldanna á milli- hægt verður að kaupa minnisbækur sem þau hafa unnið.

  • Litli Prentarinn Við bjóðum Litla Prentarann glóðvolgan úr prentsmiðju.

  • Prentsögusetur sýnir uppbyggingu í Skálholti.

  • Kynning á útgáfu Funke Media tímarit, dagblöð og önnur prentútgáfa til sýnis.

  • Iðan fræðslusetur í 20 ár Iðan á afmæli og því þarf að fagna. Starfsfólk Iðunnar fræðsluseturs tekur vel á móti ykkur. Kynning á næstu námskeiðum og hugmyndakassi fyrir þá sem vilja lauma að góðum hugmyndum.