Hátíðleg 100 ára afmælishátíð Ljósmyndarafélags Íslands
Fjölmennt var á 100 ára afmælishátíð Ljósmyndarafélags Íslands sem fór fram á Hilton Reykjavík laugardaginn 25. apríl. Samhliða hátíðinni fór fram verðlaunaafhending í ljósmyndakeppnum World Photographic Cup (WPC) og Federation of European Photographers (FEP) sem braut upp dagskrá fyrirlesara. Fyrirlestrana fluttu Kate og Brent Kirkman, Sony fyrirlesarar, Benjamin Hardman, Canon fyrirlesari, og Ragnar Axelsson (RAX), Leica fyrirlesari.
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, heiðraði samkomuna og var viss hápunktur í dagskrá dagsins þegar hún mætti í þjóðbúningi á forsetabíl Sveins Björnssonar og sat fyrir á sögulegri ljósmynd. Myndin var tekin á 120 ára gamla ljósmyndavél og framkölluð með hefðbundinni glerplötutækni en vélin var í eigu Sigríðar Zoëga brautryðjanda meðal kvenljósmyndara á Íslandi. Var þetta táknræn stund til heiðurs sögu íslenskrar fagljósmyndunar og allra þeirra frumkvöðla sem hafa markað sín spor á fagið og mótað með sínu framlagi.
Eins og gefur að skilja voru öll helstu augnablik dagsins fönguð á filmu sem má sjá nánar á heimasíðu Ljósmyndarafélagsins: https://www.ljosmyndarafelag.is/frettir/2026/4/26/100-ara-afmaelishatid










