Fréttasafn



3. jún. 2026 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Orka og umhverfi

Tækifæri til að mæta kröfum með innlendri eldsneytisvinnslu

Samtök íslenskra eldsneytisframleiðanda, SÍE, stóðu fyrir málstofu á ársfundi samtakanna sem fór fram í Húsi atvinnulífsins í maí. Á málstofunni var farið yfir vaxandi áhrif evrópsks loftslagsregluverks á rekstrarumhverfi íslensks iðnaðar, þær erlendu kröfur um græna eldsneytisupptöku sem munu taka gildi hér og hvernig alþjóðlegar skuldbindingar gætu skapað grundvöll aukins orkusjálfstæðis fyrir komandi kynslóðir.

Á málstofunni kom meðal annars fram að samhliða átökunum við Hormús-fljótið sem grafi undan orkuöryggi heimsins, aukist alþjóðlegar kröfur um græna eldsneytisnotkun í geirum sem skipti sköpum fyrir íslenskt hagkerfi. Hvergi í Evrópu sé olíunotkun á mann hærri en á Íslandi, en 70% af innfluttri olíu sé nýtt í notkunarflokkum sem verði ekki rafvæddir á komandi árum, og þurfa því aðgang að sjálfbæru eldsneyti til að draga úr losun og mæta kröfum þeirra alþjóðasamtaka sem Ísland sé aðili að. Þá kom fram að gríðarleg tækifæri séu til að mæta kröfum með hagkvæmri, innlendri eldsneytisvinnslu en samt sem áður hafi orkuskiptaaðgerðir stjórnvalda einblínt nánast eingöngu á rafvæðingu landsamgangna á meðan aðgerðir til að styðja við getu íslenskra fyrirtækja til að mæta alþjóðlegum skuldbindingum íslenskra stjórnvalda hafi verið í lágmarki.

Á málstofunni voru flutt tvö erindi. Kristófer Orri Guðmundsson hjá Qair Ísland H2 ræddi um loftslagsregluverk ESB og áhrif EU ETS, CBAM og RFNBO á grænan iðnað á Íslandi og Auður Baldvinsdóttir hjá IðunnH2 fjallaði um orkuskipti í flugi og þær alþjóðlegu kröfur sem væri hægt að mæta með innlendum lausnum. 

Image-3-1-

Image-4-1-