Fréttasafn



9. des. 2015 Mannvirki

Kortlagning byggingarferlis varpar ljósi á sóun tíma og fjármuna

 Flókið regluverk eykur bæði tíma og kostnað sem fer í byggingu húsnæðis hér á landi. Þetta er niðurstaða kortlagningar byggingarferlisins sem unnin var af Samtökum iðnaðarins og Viðskiptaráði Íslands. Flækjustigið leiðir á endanum til hærra húsnæðisverðs.

Byggingarferlinu má skipta í tólf skref. Í hverju þeirra mætir húsbyggjandi vandamálum þegar kemur að íþyngjandi regluverki eða óskilvirkum vinnubrögðum hjá hinu opinbera. Oftar en ekki eru þessu vandamál séríslensk.

Nokkur dæmi um kvaðir í núverandi regluverki:

Byggingarfulltrúa ber að skoða allt að 904 atriði þegar hönnunargögn eru afgreidd. Skortur á samræmdum vinnubrögðum leiðir til þess að stór hluti fulltrúa fer yfir öll atriðin þótt um smærri framkvæmdir sé að ræða og slíkt sé óþarft.

  • Húsbyggjandi getur þurft að leita til 51 ólíkra byggingafulltrúa eftir því hvar eignin er staðsett. Fulltrúarnir geta gefið misvísandi upplýsingar og sinna leiðbeiningarskyldu sinni oft með ófullnægjandi hætti.

  • 21 sjálfstæð áfangaúttekt auk öryggis- og lokaúttektar þurfa að fara fram áður en mannvirki er tekið í notkun.

Samtök iðnaðarins og Viðskiptaráð kalla eftir einfaldara regluverki og breyttri stofnanaumgjörð. Meðal annars ætti að færa byggingafulltrúaembættin undir Mannvirkjastofnun, samræma reglur um lóðaúthlutanir á landsvísu, fækka atriðum sem farið er yfir við afgreiðslu byggingarleyfis, heimila húsbyggjanda að sinna jafnframt hlutverki byggingastjóra í sérbýli, þrepaskipta kvöðum um skil hönnunargagna, draga úr umframkröfum í byggingareglugerð, auka notagildi áfrýjunarréttar, einfalda gjaldheimtu sveitarfélaga og fækka sjálfstæðum úttektum.

Framangreindar breytingar myndu draga úr sóun á tíma og fjármunum vegna íþyngjandi regluverks og óskilvirks stofnanaumhverfis. Þannig myndu þær lækka byggingarkostnað án þess að slá í nokkru af kröfum um öryggi og gæði við byggingu húsnæðis. Skoða á vef

---------------------------------

Fréttir tengdar húsnæðismálum og byggingarkostnaðir:

Jafnvægi gæti skapast á íbúðamarkaði

Markaðurinn á alltaf síðasta orðið

115 fm íbúð gæti lækkað um 5 milljónir

Samstaða um nauðsyn smærri og hagkvæmari íbúða

Lóðaverð hækkar um 508% á 12 árum