Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn SI

Héðinn hf. við steðjann í 80 ár

18.11.2002

Vélsmiðjan Héðinn hf., elsta og öflugasta málmiðnaðarfyrirtæki landsins, fagnar 80 ára afmæli sínu á þessu ári en hún var stofnuð í Reykjavík síðla árs 1922.

Listaverk Huldu HákonarStofnendur og aðaleigendur fyrirtækisins, Markús Ívarsson og Bjarni Þorsteinsson ráku fyrirtækið í upphafi en lengst af var Sveinn í Héðni Guðmundson forstjóri en undir hans stjórn óx Héðinn mjög og dafnaði. Núverandi framkvæmdastjóri er Guðmundur S. Sveinsson. Lengi vel var Héðinn fjölskyldufyrirtæki en er nú opið hlutafélag í blandaðri eign.

Gamalt fyrirtæki á nýjum stað
Það varð fyrirtækinu mikil lyftistöng þegar þungamiðja starfseminnar fluttist úr gömlu margra hæða húsi í Vesturbæ Reykjavíkur í nýtt 6 þúsund fermetra hús á einu gólfi í Garðabæ. Guðmundur Sveinsson, framkvæmdastjóri, segir að aðstaðan sé eins góð og hægt sé að hugsa sér. Þar sé hátt til lofts og vítt til veggja. Lóðin henti vel, sé miðsvæðis, aðkoman góð og tækjabúnaður eins og best verði á kosið.

Aftur til upprunans
Árið 1992 var fyrirtækið rekið sem þrjár sjálfstæðar einingar, Garðastál, Smiðja og Verslun en hver um sig var gerð að sjálfstæðu hlutafélagi árið 1995. Síðar voru Garðastál og Verslunin seld og nú einbeitir Héðinn hf. sér að þjónustu við útgerð og fiskimjölsverksmiðjur eins og til var stofnað í upphafi.

Suða Það ánægjulegasta við þetta, segir Guðmundur, er að þessi gamla eining sem á rætur sínar að rekja til 1922 hefur gengið afskaplega vel undanfarin ár enda höfum við verið heppin bæði með verkefni og starfsmenn sem nú eru 90 talsins. Við höfum skilað hagnaði ár eftir ár á sama tíma og aðrir í sama bransa hafa átt erfitt. Velgengnin er einkum fólgin í því að fyrirtækið stendur á gömlum merg og andinn hefur verið góður frá upphafi og hér hafa alla tíð starfað úrvalsmenn. Við eigum afar sterka og öfluga Tæknideild þar sem starfa tæknifræðingar og verkfræðingar og sú deild er bakhjarl í öllu sem kallast stórverkefni. Síðast en ekki síst er fjárhagslega staðan afskaplega sterk þannig að við eigum að þola smááföll og erfiða tíma ef þeir renna upp.

Öflug starfsemi innanlands sem utan
Vinna við skrúfuásþéttiFyrirtækið þjónar bæði fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi en líka mjög víða erlendis og þau verkefni fara mjög vaxandi að sögn Guðmundar. Við höfum keypt meirihluta í fyrirtæki í Noregi sem þjónar þarlendum iðnaði, ekki síst olíuiðnaðinum. Dótturfyrirtæki Héðins í Noregi hefur samið við Norsk Hydro um gegngera endurnýjun á gashiturum um borð í risavöxnum borpalli í Norðursjónum. Í því verkefni felst mikil viðurkenning en það verður bæði flókið og vandasamt ekki síst vegna þess að pallurinn verður í fullum rekstri meðan á verkinu stendur.

Þjónusta við útgerðarfyrirtæki innanlands sem utan
Héðinn sérhæfir sig í þjónustu við útgerðarfyrirtæki hvað varðar vélbúnað í stærri skipum, einkum aðalvél, víra, skrúfur og spil sem tengjast veiðarfærum svo að nokkuð sé nefnt. Gegnum þessa starfsemi höfum við verið í miklum tengslum við norska fyrirtækjalínu sem nú er í eigu Rolls Royce og gengur undir nafninu Rolls Royce Marine og við erum umboðsmenn þess. Við erum með sérhæfða þjónustumenn sem kunna á þessi tæki og þeir hafa verið sendir út um allan heim á vegum Rolls Royce Marine. Þannig hefur útrás Héðins orðið í þeim geira. Viðskiptatengsl okkar liggja því víða eða þar sem skipin eru hverju sinni.

Stórverkefni í Helguvík og Færeyjum
Helsta stolt okkar á afmælisárinu er afar spennandi verkefni sem hæfir okkur mjög vel en það er sorpbrennslustöðin í Helguvík á Reykjanesi sem nú er í smíðum og á að ljúka á næsta ári. Verkefnið er mjög stórt og kostar um 750 milljónir króna. Þetta er svokallað turn key verkefni eða heildarlausn sem er fólgin í því að við tökum við lóðinni og afhendum eigendum lyklana þegar allt er frá gengið. Lausnin er eins og lofað var, verkinu skilað á umsömdum tíma og innan þess fjárhagsramma sem viðskiptavinurinn setti.

Vinna við þvottaturnFiskimjölsverksmiðjur hafa um áratugaskeið verið annar aðalmarkhópur Héðins og hafa átt stóran þátt í þróun þess iðnaðar hér á landi. Nú er fjöldi manns á vegum Héðins að leggja lokahönd á viðamikið verkefni í færeysku fiskimjölsverksmiðjunni Havsbrún en það verk er liður í umfangsmikilli stækkun verksmiðjunnar sem Héðinn hefur borið hita og þunga af í samvinnu við norska fyrirtækið Stord- Bartz. Að því verki loknu verður Havsbrún ein afkastamesta fiskimjölsverksmiðja á Norður-Atlantshafi að sögn Guðmundar.

Forréttindi Járnsteypunnar
Járnsteypan, sem stofnuð var árið 1905, er eina framleiðslueiningin í eigu Héðins hf. sem enn er til húsa á gömlu lóðinni við Héðinshúsið í Reykjavík og hefur um árabil smíðað hvers kyns hluti sem notaðir eru m.a. í gatnakerfi borgarinnar, s.s. ristar og brunnlok að ónefndum gamalkunnum garðbekkjum.

Guðmundur segir að þeim Héðinsmönnum sé afskaplega annt um þessa gömlu járnsmiðju. Ekki síst njóti þeir þess að vinna með þeim mörgu listamönnum, einkum myndhöggvurum, sem þangað koma með verk sín til að fá þau steypt í málm. Það eru forréttindi okkar, sem vinnum í þessu umhverfi, að fá að starfa með listamönnum og Járnsteypan nýtur þess að steypa fyrir elítuna í hópi viðurkenndra listamanna, segir Guðmundur S. Sveinsson. Samtök iðnaðarins árna Héðni hf. allra heilla í tilefni afmælisins.

Gufuháfur

Þóra Kristín Jónsdóttir

 

 

Sérvefir innan SI

  • Meistarinn
    Veldu þér fagmann þegar vanda skal til verks.
  • GSI.is
    Markviss stjórnun leiðir til bættrar afkomu.
  • NHKI-PIP
    Putting IC into practice.


 

 

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica heimasiðugerðheimasiðugerð - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.