Viðburðir
08.03.2018 - 11.03.2018 kl. 10:00 - 17:00 Laugardalshöll

Verk og vit 2018

Sýningin Verk og vit 2018 verður haldin í Laugardalshöllinni dagana 8.-11. mars.

Sýningin er tileinkuð byggingariðnaði, skipulagsmálum, mannvirkjagerð og tengdum greinum. Markmið sýningarinnar er að koma á viðskiptum fagaðila, auka vitund almennings um starfsemi atvinnugreinanna sem að sýningunni koma, skipulagsmál og menntun.

Fjölbreyttir viðburðir verða haldnir samhliða sýningunni og verða þeir kynntir þegar nær dregur. Skráning er hafin á vef sýningarinnar www.verkogvit.is.

Framkvæmdaaðili sýningarinnar er AP almannatengsl en samstarfsaðilar eru atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Reykjavíkurborg, Samtök iðnaðarins, BYKO og Landsbankinn.