Flýtum fyrir uppbyggingu innviða með samvinnuleið

26. jan. 2022

Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, skrifar um uppbyggingu innviða í ViðskiptaMogganum.

Með því að nýta samvinnuleið hins opinbera og einkaaðila við uppbyggingu innviða er hægt að flýta fyrir þjóðhagslega arðbærri fjárfestingu. Bæði innviðaráðherra og formaður SI lögðu áherslu á mikilvægi þessa í ávörpum sínum á Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins sem fram fór í síðustu viku. Fjárfesting í innviðum er lykillinn að langtímahagvexti og framleiðnivexti. Traustir innviðir eru undirstöður framleiðslugetu hagkerfisins og auka möguleika fyrirtækja til að skapa verðmæti. Styðja má beint við framleiðslugetu hagkerfisins með fjárfestingu í innviðum. 

Sú mikla áhersla á innviði sem birtist í stjórnarsáttmála og ráðuneytisskipan nýrrar ríkisstjórnar er ánægjuleg. Nýtt innviðaráðuneyti mun án efa stuðla að auknum málshraða, færri flöskuhálsum og samræmdri stefnu í þessum mikilvæga málaflokki. Fjárfesting í innviðum, s.s. í höfnum, flugvöllum, vegum og brúm, eykur samkeppnishæfni og afkastagetu þjóðarbúsins sem skilar sér m.a. í auknum gjaldeyristekjum. 

Fjárfesting á þessu sviði eykur framleiðni, sparar kostnað, slær á atvinnuleysi og dregur úr sóuðum tíma í töfum fyrir heimili og fyrirtæki. Aukin framleiðni skilar sér síðan í lægri vöxtum og enn minna atvinnuleysi. 

Til þess að efnislegir innviðir landsins styðji við öfluga verðmætasköpun fyrirtækja þurfa stjórnvöld að hafa í huga að fjárfesting í innviðum þarf ávallt að mæta þörfum atvinnulífs og heimila. Áhersla þarf að vera á fjárfestingu í innviðum sem skapa mestan þjóðhagslegan ávinning. Viðhaldi á innviðum þarf á hverjum tíma að vera nægjanlega vel sinnt þannig að ástand þeirra sé gott. 

Á Útboðsþingi SI kom fram að áætluð heildarupphæð í útboðum þeirra 11 opinberu aðila sem tóku þátt nemur 109 mö.kr. sem er 15 mö.kr. lægri upphæð en á árinu 2021. Í ljósi mikilvægis innviða er þessi samdráttur áhyggjuefni. Gæta þarf vel að því að ekki myndist viðlíka ástand og á árunum eftir efnahagsáfallið 2008 þar sem litlum fjármunum var varið í viðhald og fjárfestingar í innviðum. Mikilli skuldasöfnun var velt yfir á næstu kynslóðir og kom það niður á samkeppnishæfni og verðmætasköpun hagkerfisins. Við erum enn að takast á við afleiðingarnar. Vegakerfið er í slæmu ástandi og verkefnin þar mörg í nýfjárfestingu og viðhaldi. Orkuskortur kallar einnig á sérstakar ráðstafanir, bæði í framleiðslu og flutningskerfi raforku sem á köflum er úr sér gengið, sem leiðir til óásættanlegrar sóunar verðmæta. 

Ríkið hefur á síðustu árum sett aukna fjármuni í innviðauppbyggingu til að mæta uppsafnaðri þörf og sporna gegn samdrætti í hagkerfinu. Átak stjórnvalda á þessu sviði fólst í því að setja aukinn kraft í viðhald og nýfjárfestingar eða flýta áður fyrirhuguðum framkvæmdum. Jókst fjárfesting ríkisins bæði í fjárhæðum og sem hlutfall af landsframleiðslu. Það er hins vegar áhyggjuefni að dregið hafi úr fjárfestingu sveitarfélaga þvert á yfirlýsingar margra þeirra um að auka við fjárfestingar á síðustu misserum. 

Þó að fjárfesting hins opinbera hafi aukist á síðustu árum eftir að hafa verið mjög lítil í kjölfar efnahagsáfallsins 2008 þá er fjárfestingarstig hins opinbera enn lágt í sögulegu ljósi. Aukning í opinberri fjárfestingu á síðustu árum nær ekki að vinna upp þá miklu fjárfestingar- og viðhaldsþörf sem þá myndaðist. Mikilvægt er að ekki sé dregið úr fjárfestingu og viðhaldi í innviðakerfinu á næstunni. Þvert á móti er ástæða til að bæta í fjárfestingu hins opinbera í innviðum og tryggja framgang efnahagslega arðbærra verkefna. Með þeim hætti undirbyggjum við samkeppnishæfni atvinnulífsins og aukin lífsgæði landsmanna litið til framtíðar. 

Í ávarpi innviðaráðherra á Útboðsþingi SI kom fram að í nokkrum afmörkuðum stærri framkvæmdum væri uppbygging innviða fjármögnuð með samvinnuleið hins opinbera og einkageirans. Það verður að teljast jákvætt enda markmiðið að flýta fyrir og stuðla að þjóðhagslega arðbærri fjárfestingu. Rétt er að hvetja stjórnvöld til dáða í þessum efnum. 

Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI.

ViðskiptaMogginn, 26. janúar 2022.