Vegi í forgang

3. apr. 2018

Ríkisstjórnin lagði ríka og um leið tímabæra áherslu á innviðauppbyggingu í stjórnarsáttmálanum enda hafa innviðir landsins látið verulega á sjá á undanförnum árum. 

Ríkisstjórnin lagði ríka og um leið tímabæra áherslu á innviðauppbyggingu í stjórnarsáttmálanum enda hafa innviðir landsins látið verulega á sjá á undanförnum árum. Í byrjun apríl kemur fram áætlun um fjármál ríkisins til næstu fimm ára. Þar hlýtur ríkisstjórnin að sýna vilja sinn í verki og má búast við mikilli aukningu á framlögum til vegamála til þess að vinna á þeirri gríðarmiklu uppsöfnuðu þörf sem hefur myndast um land allt. 

Margt hvílir á samgönguinnviðum 

Iðnaðarframleiðsla og sjávarútvegur frá hinum ýmsu byggðum hafa myndað meginstoðir útflutnings á síðustu áratugum og borið uppi velmegun. Á öðrum áratug 21. aldar er þá svo komið að aðdráttarafl íslenskrar náttúru skapar umtalsverðar útflutningstekjur og hefur lagt grunninn að styrkri stoð í hagkerfinu.

Vísbendingar eru um að samgönguinnviðir spili stærra hlutverk í verðmætasköpun íslenska hagkerfisins en gengur og gerist. Þeir hafa tengt strjálar byggðir og Ísland við umheiminn og miðlað verðmætum hvaðanæva til endanlegra notenda. Aðstæður okkar sem fámenn þjóð í stóru landi leggja okkur línurnar og Íslendingar eiga samgönguinnviðum margt að þakka. Þetta endurspeglast í fjárfestingu íslenska hagkerfisins í samgönguinnviðum sem er mjög mikil í alþjóðlegum samanburði og fjallað er um í nýlegri skýrslu Samtaka iðnaðarins, Ísland í fremstu röð – eflum samkeppnishæfni. 

Vegi-i-forgang

Skýr vilji ráðherra 

Fjárveitingar til vegamála hafa verið allt of litlar undanfarin ár og stórátak þarf til að bæta úr. Afleið- ingarnar blasa við okkur víða um land þar sem vegir eru illa farnir eða bíða uppbyggingar. Samgönguráðherra kynnti nýlega niðurstöður þar sem kemur fram að yfir 200 milljarða vantar til fjárfestinga og viðhalds í íslenska vegakerfinu. Af þeirri tölu eru rösklega 60 milljarðar í uppsafnað viðhald á vegum landsins. Er það í takt við mat Samtaka iðnaðarins. Til viðbótar við þessa tölu kemur reglubundið viðhald á hverju ári sem hleypur á milljörðum króna. Ljóst er, miðað við fjárframlög síðustu ára, að tugi ára mun taka að vinna á uppsöfnuðum vanda, að óbreyttu. Það er ráðherranum til hróss að horfast í augu vandann og sýnir skýran pólitískan vilja til að bæta úr. 

Fjárfestum í öryggi 

Samkvæmt öryggisúttekt EuroRap á íslenska þjóðvegakerfinu fengu um 3.000 km af íslenska þjóðvegakerfinu eina til tvær stjörnur af fimm mögulegum. Vegirnir eru stórhættulegir og verulega er vegið að öryggi vegfarenda. Fækkun slysa er forgangsmál og ráðast þarf í uppbyggingu innviða til að bæta þarna úr. 

Fjárfestum í auknum lífsgæðum 

Aukinn tími í umferðinni skerðir lífsgæði og dregur úr framleiðni fyrirtækja. Umferð á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2018 jókst um 21% frá febrúar 2013. Samfara þessu jókst meðalferðatími til vinnu um 40% á árunum 2007-2016. Tölur fyrir árið 2018 hafa ekki verið birtar en líklegt er að meðalferðatími hafi aukist enn meir. Þessari þróun verður að mæta og snúa við. Það verður eingöngu gert með fjárfestingu í samgönguinnviðum og öðrum aðgerðum, t.d. skilvirkari ljósastýringu. 

Fjárfestum í hagvexti framtíðar 

Greiðar samgöngur eru forsenda verðmætasköpunar í grundvallaratvinnugreinum. Fiskur er fluttur á vegum landsins á leið sinni til erlendra neytenda og vöxtur ferðaþjónustu og iðnaðar ýmiss konar er samofinn innviðauppbyggingu. Með fjárfestingu í vegakerfinu er því lagður nauðsynlegur grunnur að framtíðarvexti og stutt við núverandi verðmætasköpun. 

Nú er rétti tíminn til uppbyggingar. Seðlabankinn spáir hægari vexti hagkerfisins á næstu árum. Þar að auki hefur Landsvirkjun boðað framkvæmdahlé næstu árin og útlit er fyrir hægari uppbyggingu í ferðaþjónustu eftir umtalsverða og nauðsynlega fjárfestingu undanfarinna ára. Þar með losnar um framleiðsluþætti sem hægt er að nýta til uppbyggingar vegakerfisins. Skilvirk fjárfesting í innviðum dregur einnig úr framleiðsluspennu í gegnum framleiðniaukningu. Þar skiptir þó forgangsröðun meginmáli. 

Lyfta þarf grettistaki á næstu árum til að koma þessum mikilvægu innviðum í ásættanlegt horf. Of lengi hefur löngu tímabæru viðhaldi og ný-framkvæmdum vega verið slegið á frest. Með því að forgangsraða í þágu innviðauppbyggingar er fjárfest í öryggi, auknum lífsgæðum og hagvexti framtíðarinnar. Verkefnið er brýnt. Tíminn er núna.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.

Morgunblaðið, 31. mars 2018.