Við erum í dauðafæri

23. sep. 2021

Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI, skrifar um hugverkaiðnað í Morgunblaðinu.

Við stöndum frammi fyrir sögulegu tækifæri til að efla lífskjör hér á landi til langrar framtíðar. Hugverkaiðnaður hefur fest sig í sessi sem fjórða stoðin í útflutningi þjóðarbúsins. Útflutningstekjur hugverkaiðnaðar námu 160 milljörðum króna á síðasta ári, í miðjum heimsfaraldri og tilheyrandi efnahagsóvissu. Aukinn útflutningur á þessu sviði er ekki tilviljun. Aukningin er afsprengi áræðinna frumkvöðla og markvissra aðgerða stjórnvalda. Útflutningstekjur hugverkaiðnaðar hafa aukist jafnt og þétt og tvöfaldast frá árinu 2013. Það er kominn nýr keppandi í hagkerfið og hann er í eðli sínu ólíkur öðrum útflutningsstoðum Íslands.

Hugverkaiðnaður er fjölbreyttur. Tölvuleikjagerð, hugbúnaðarþróun, hátæknibúnaður fyrir matvælaframleiðslu, gagnavinnsla, líftækni, þróun lyfja og heilbrigðistækni. Það sem fyrirtæki innan hugverkaiðnaðar eiga sameiginlegt er að þau byggjast upp á fjárfestingu í rannsóknum og þróun og þau hafa nær ótakmörkuð vaxtatækifæri á alþjóðamörkuðum. Lausnir við áskorunum í heilbrigðiskerfinu og loftslagsvandanum felast meðal annars í fjárfestingu í rannsóknum og þróun, nýsköpun og nýrri tækni. Græn tækni og heilbrigðistækni geta þannig á sama tíma átt þátt í lausn þessara stóru áskorana og skapað verðmæti fyrir þjóðarbúið og stækkað fjórðu stoðina.

Skattahvatar vegna rannsókna og þróunar, sem hafa verið auknir verulega á síðustu þremur árum, leika stórt hlutverk í þessari þróun. Þannig hafa réttar ákvarðanir stjórnvalda leitt hratt til aukinna fjárfestinga í nýsköpun. Hækkun á endurgreiðslum sem fest var í lög í maí 2020 hafði strax jákvæð áhrif. Fjölmörg dæmi eru um fyrirtæki í hugverkaiðnaði sem sóttu fram, fjölguðu starfsfólki og juku fjárfestingu á sama tíma og fyrirtæki í mörgum öðrum atvinnugreinum fækkuðu starfsfólki vegna efnahagsóvissu. Hugverkaiðnaður getur þannig sveiflujafnað hagkerfið og aukið stöðugleika sem hefur verið langþráð markmið.

Ef rétt er á málum haldið mun hugverkaiðnaður halda áfram að vaxa og dafna. Festa þarf hækkun á endurgreiðslum vegna rannsókna og þróunar í sessi í lögum. Þá þarf að liðka verulega fyrir ráðningu erlendra sérfræðinga enda er aðgangur að sérfræðiþekkingu á ýmsum sérhæfðum sviðum takmarkaður hér á landi og er hindrun í vegi vaxtar fyrirtækja í hugverkaiðnaði. Eitt stærsta efnahagsmálið er að ryðja hindrunum úr vegi á þessu sviði. Ný ríkisstjórn þarf að setja hugverkaiðnað og áframhaldandi fjárfestingu í nýsköpun í algjöran forgang á næsta kjörtímabili. Uppskeran af því verður ríkuleg fyrir alla landsmenn til langrar framtíðar og mun skapa eftirsótt og verðmæt störf á Íslandi fyrir framtíðarkynslóðir.

Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI.

Morgunblaðið, 23. september 2021.