Niðurstaða úr kjöri til stjórnar og ráðgjafaráðs SI

Helgi Magússon er nýr formaður SI og Þorsteinn Víglundsson, Anna María Jónsdóttir og Ingvar Kristinsson voru kjörin til stjórnarsetu næstu tvö árin.

Helgi Magússon er nýr formaður SI og Þorsteinn Víglundsson, Anna María Jónsdóttir og Ingvar Kristinsson voru kjörin til stjórnarsetu næstu tvö árin. Kosningaþátttaka var 73,10%.

Formannskjör

Helgi Magnússon fékk 91% greiddra atkvæða.

Aðrir fengu 1% greiddra atkvæða.

Auð og ógild atkvæði 8%.

Helgi Magnússon verður því formaður Samtaka iðnaðarins fram

til Iðnþings 2007.                             

Kjör stjórnar og ráðgjafaráðs

Alls gáfu níu kost á sér.

Stjórn

Þessi þrjú hlutu flest atkvæði og setjast í stjórn Samtaka iðnaðarins til næstu tveggja ára:

  • Þorsteinn Víglundsson, BM Vallá ehf.   
  • Anna María Jónsdóttir, Laugar Spa, snyrti- og nuddstofa ehf. 
  • Ingvar Kristinsson, Landsteinar Strengur hf. 

 

Fyrir í stjórn Samtakanna eru:

  • Aðalheiður Héðinsdóttir, Kaffitár ehf.
  • Hörður Arnarson, Marel hf.
  • Loftur Árnason, Ístak hf.
  • Sigurður Bragi Guðmundsson, Plastprent hf.

 

Ráðgjafaráð

Þessir sex komu næst að atkvæðatölu og eru kjörnir til setu í ráðgjafaráði Samtaka iðnaðarins til eins árs og eru jafnframt varamenn í stjórn Samtakanna. Þeim er raðað hér í stafrófsröð:

  • Bolli Árnason, GT Tækni ehf.
  • Helgi Jóhannesson, Norðurmjólk ehf.
  • Jakob K. Kristjánsson, Prokaria ehf.
  • Karl Þráinsson, Íslenskir aðalverktakar hf.
  • Sveinbjörn Hjálmarsson, Umslag ehf.
  • Vigfús Kr. Hjartarson, Bakarameistarinn ehf.