Guðrún Hafsteinsdóttir kjörin formaður Samtaka iðnaðarins

Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í dag var Guðrún Hafsteinsdóttir kjörin formaður Samtaka iðnaðarins. Endurkjörin í stjórn voru þau Bolli Árnason, GT Tækni, Vilborg Einarsdóttir, Mentor og Sigsteinn Grétarsson, Marel. Nýr í stjórn var kjörinn Eyjólfur Árni Rafnsson, Mannviti.

Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í gær var Guðrún Hafsteinsdóttir kjörin formaður Samtaka iðnaðarins. Endurkjörin í stjórn voru þau Bolli Árnason, GT Tækni, Vilborg Einarsdóttir, Mentor og Sigsteinn Grétarsson, Marel. Nýr í stjórn var kjörinn Eyjólfur Árni Rafnsson, Mannviti.

Tveir voru í framboði, Guðrún Hafsteinsdóttir, Kjörís ehf. og Svana Helen Björnsdóttir Stika ehf.          

Nánar:

Kosningaþátttaka var 85,5%

Guðrún Hafsteinsdóttir hlaut  106.151 atkvæði eða 52,4% greiddra atkvæða og Svana Helen Björnsdóttir 88.684 atkvæði eða 43,8%  greiddra atkvæða. Aðrir fengu 3,8%.

Guðrún Hafsteinsdóttir verður því formaður Samtaka iðnaðarins fram til Iðnþings 2015.

Kjör stjórnar og ráðgjafaráðs:

Alls gáfu sex kost á sér.

Stjórn

Kosið var um þrjú sæti í stjórn Samtakanna og hlutu þessi flest atkvæði og setjast í stjórn Samtaka iðnaðarins til næstu tveggja ára:

Bolli Árnason, GT Tækni ehf.

Eyjólfur Árni Rafnsson, Mannvit hf.                                                                         

Vilborg Einarsdóttir, Mentor ehf.   

Ný kjörinn formaður, Guðrún Hafsteinsdóttir,  var einnig stjórnarmaður Samtakanna og því tekur fjórði maður í stjórnarkjörinu, Sigsteinn P. Grétarsson, Marel hf, sæti hennar í stjórninni.

Fyrir í stjórn Samtakanna eru:

Andri Þór Guðmundsson, Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf.

Kolbeinn Kolbeinsson, Ístak hf

Ragnar Guðmundsson, Norðurál ehf. 

Ráðgjafaráð

Þessir tveir komu næst að atkvæðatölu og eru kjörnir til setu í ráðgjafaráði Samtaka iðnaðarins til eins árs og eru jafnframt varamenn í stjórn Samtakanna.
Þeim er raðað hér í stafrófsröð.

Jón Gunnar Jónsson, Actavis ehf.

Lárus Jónsson,  Rafþjónustan shf.