Fréttasafn



Fréttasafn: ágúst 2011

Fyrirsagnalisti

31. ágú. 2011 : Frumtak fjárfestir í DataMarket

Frumtak hefur fest kaup á hlut í DataMarket ehf. DataMarket hjálpar fólki að finna og skilja töluleg gögn. Fyrirtækið hefur þróað og rekur gríðarmikið safn slíkra gagna frá tugum alþjóðlegra fyrirtækja og stofnanna, svo sem Sameinuðu Þjóðunum, Alþjóðabankanum, Eurostat og BP.

31. ágú. 2011 : Aðgerðin heppnaðist - en sjúklingurinn lést

Til er sönn eða login saga af færum lækni sem átti að hafa framkvæmt vandasaman uppskurð sem honum þótti takast einkar vel. Að loknu verki átti hann að hafa lýst því yfir að uppskurðurinn hafi heppnast fullkomlega. Bætti svo við: En sjúklingurinn lést því miður.

29. ágú. 2011 : Styrkir til vinnustaðanáms

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til fyrirtækja eða stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám. Umsóknarfrestur er til 15. september 2011.

26. ágú. 2011 : Fyrsta starfsár CleanTech Iceland viðburðaríkt

Á fyrsta aðalfundi CleanTech Iceland sem haldinn var í morgun var farið yfir viðburðaríkt ár í starfsemi félagsins, En CTI sem var stofnað 1. júní 2010 hefur nú lokið sínu fyrsta starfsári. Á félagaskrá CTI eru 14 fyrirtæki, þau starfa á ýmsum sviðum en eiga það sameiginlegt að vinna að þróun umhverfisvænna tæknilausna.

26. ágú. 2011 : Óskað eftir tilnefningum til Fjöreggs MNÍ 2011

Þekkir þú til fyrirtækis, stofnunar eða einstaklings sem sýnt hefur frumkvæði og skarað fram úr á matvæla- og/eða næringarsviði? Matvæladagur Matvæla- og næringarfræðafélags Ísland 2011 verður haldinn 18. október. Á matvæladeginum verða veitt árleg verðlaun, FJÖREGG MNÍ, fyrir lofsvert framtak á matvæla og/eða næringarsviði.

25. ágú. 2011 : Fagfólk í matvælagreinum ánægt

Matvæla- og veitingasvið IÐUNNAR lét gera könnun, síðastliðið vor, sem hafði að markmiði að meta vinnuumhverfi fagmanna í matvælagreinum. Niðurstöðurnar sýna, svo ekki verður um villst, að mikill meirihluti svarenda er ánægður bæði með nám og starf í sinni grein og telur sig geta mælt með henni við ungt fólk.

19. ágú. 2011 : Harpa Einarsdóttir vann fyrstu hönnunarkeppni Reykjavík Runway

Hönnuðurinn Harpa Einarsdóttir sem hannar undir merkinu ZISKA vann fyrstu hönnunarkeppni Reykjavík Runway sem var haldin í Listasafni Reykjavíkur 18. ágúst.

18. ágú. 2011 : Ljúka aðildarviðræðum og kjósa

Ísland hefur sótt um aðild að Evrópusambandinu. Samtök iðnaðarins telja mikilvægt að umsóknarferlinu sé haldið áfram af fullum heilindum og í náinni samvinnu við atvinnulíf og aðra hagsmunaaðila.

18. ágú. 2011 : Átak til atvinnusköpunar

Opnað verður fyrir styrkumsóknir í verkefnið Átak til atvinnusköpunar 20. ágúst nk. Umsóknarfrestur er til 22. september. Markmið með verkefninu er að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta og að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða í frumkvöðla- og
sprotafyrirtækjum.

17. ágú. 2011 : Vaxtahækkun er slæm tíðindi

Seðlabankinn ákvað í dag að hækka vexti um 0,25% prósentur í 4,5% og ber fyrir sig versnandi verðbólguhorfum. Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir þessa ákvörðun vera óskiljanlega og hafa komið á óvart þrátt fyrir yfirlýsingar Seðlabankans í vor um að vextir kynnu að verða hækkaðir.

15. ágú. 2011 : Skattar og opinber útgjöld eru há á Íslandi í alþjóðlegum samanburði

Skattar eru mjög háir á Íslandi í alþjóðlegum samanburði, hvort sem um er að ræða óbeina skatta, tekjuskatta eða eignarskatta. Í aðdraganda fjárlaga fyrir næsta ár og í ljósi vanda sem við er að etja í opinberum fjármálum er enn farið að ræða um skattahækkanir. Fjallað er um málið á vef SA.

12. ágú. 2011 : Alþjóðleg ráðstefna í Hörpu um nýsköpun

Samtök frumkvöðlakvenna halda glæsilega alþjóðlega ráðstefnu, EUWIIN 2011, í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu þann 7.-8.september næstkomandi, og er gert ráð fyrir að minnsta kosti 300 manns víðsvegar að úr heiminum. Ráðstefnan átti að vera í maí en frestaðist vegna eldgoss í Grímsvötnum.