Fréttasafn



Fréttasafn: maí 2014

Fyrirsagnalisti

28. maí 2014 : Helgi Már Halldórsson nýr formaður SAMARK

Aðalfundur Samtaka arkitektastofa, SAMARK, var haldinn í gær. Á fundinum var Helgi Már Halldórsson kjörinn nýr formaður samtakanna en hann tekur við af Ögmundi Skarphéðinssyni. Aðrir í stjórn voru kosnir Ásdís Helga Ágústsdóttir og Þráinn Hauksson.

28. maí 2014 : Mikið um að vera á Nýsköpunartorgi

Vel tókst til á Nýsköpunartorgi sem haldið var í Háskólanum í Reykjavík dagana 23. og 24 maí. Um var að ræða fagráðstefnu um starfsumhverfi og uppbyggingarferli nýsköpunarfyrirtækja og sýningu þar sem fyrirtæki og stofnanir kynntu árangur í nýsköpun.

28. maí 2014 : Rio Tinto Alcan hlýtur Hvatningarverðlaun jafnréttismála

Rio Tinto Alcan á Íslandi hf. hlýtur Hvatningarverðlaun jafnréttismála sem veitt voru í fyrsta sinn í dag á ráðstefnunni "Aukið jafnrétti - aukin hagsæld".Að verðlaununum standa atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, UN Women á Íslandi, Festa - miðstöð um samfélagsábyrgð og Samtök atvinnulífsins.

26. maí 2014 : Datamarket hlýtur VAXTARSPROTANN 2014

Fyrirtækið Datamarket ehf. hlaut Vaxtarsprotann 2014 sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis á síðasta ári. Fyrirtækið jók sölutekjur sínar milli áranna 2012 og 2013 um 134%. Fyrirtækin Valka, Nox Medical og Skema fengu einnig viðurkenningar fyrir góðan vöxt.

26. maí 2014 : Þaramajónesið Fjaran sigrar í EcoTrophelia Ísland

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra veitti verðlaun í keppninni EcoTrophelia Ísland sl .föstudag á Nýsköpunartorgi í í Háskólanum í Reykjavík. EcoTrophelia Ísland er hluti af alþjóðlegri keppni og er vöruþróunarkeppni meðal háskólanemenda sem felst í því að þróa vistvæna matvöru.

21. maí 2014 : Aðalfundur Félags ráðgjafarverkfræðinga

Aðalfundur Félags Ráðgjafarverkfræðingavar haldinn 15. maí. Áður en eiginleg aðalfundarstörf hófust flutti Þórður Hilmarsson, forstöðumaður fjárfestingasviðs Íslandsstofu, áhugavert erindi þar sem fjallað var um vinnu við að laða að erlenda fjárfestingu til Íslands.

21. maí 2014 : Viljayfirlýsing um stofnun rannsóknarseturs í áli og efnisvísindum

Undirbúningur er hafinn að stofnun og rekstri rannsóknarseturs í áli og efnisvísindum. Viljayfirlýsing um það var undirrituð í morgun af Ragnheiði Elínu Árnadóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Þorsteini Inga Sigfússyni forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Guðrúnu Sævarsdóttur forseta tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík, Ólafi Pétri Pálssyni deildarforseta iðnaðar, vélaverkfræði og tölvunarfræði Háskóla Íslands og Rannveigu Rist stjórnarformanni Samáls, samtakaálframleiðenda.

21. maí 2014 : True North hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, veitti kvikmyndafyrirtækinu Truenorth Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2014 við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Það voru Helga Margrét Reykdal, framkvæmdastjóri og Leifur B. Dagfinnsson, stjórnarformaður Truenorth, sem veittu verðlaununum viðtöku fyrir hönd fyrirtækisins. 

15. maí 2014 : IÐAN fræðslusetur flytur í Vatnagarða 20

Föstudaginn 16. maí nk. flytur IÐAN fræðslusetur starfsemi sína í nýtt húsnæði að Vatnagörðum 20 í Reykjavík. Skrifstofur IÐUNNAR verða lokaðar allan daginn 16. maí. Við opnum svo stundvíslega kl. 9:00 mánudaginn 19. maí í Vatnagörðum 20. Aðstaða bílgreinasviðs IÐUNNAR að Gylfaflöt 19 verður á sínum stað til mánaðarmóta.

8. maí 2014 : Mennta- og menningarmálaráðuneytið leggur Forriturum framtíðarinnar lið

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur ákveðið að leggja Forriturum framtíðarinnar lið með tveggja milljóna króna styrk í gegnum GERT verkefnið. Forritarar framtíðarinnar er sjóður sem hefur það að markmiði að forritun verði kennd sem hluti af skólanámskrá grunn- og framhaldskóla á Íslandi.

7. maí 2014 : Brjóstabollur með kaffinu alla mæðradagshelgina

Félagsmenn í Landssambandi bakarameistara, LABAK, efna til sölu á brjóstabollum í bakaríum um allt land um mæðradagshelgina, dagana 8.-11. maí. Bollusalan er til stuðnings styrktarfélaginu Göngum saman semstyrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini og úthlutar styrkjum í október ár hvert.

7. maí 2014 : Nám í Frumgreinadeild Háskólans í Reykjavík

Frumgreinadeild  Háskólans í Reykjavík býður upp á nám fyrir fólk sem vantar tilskilinn undirbúning fyrir háskólanám. Frumgreinanámið er góður kostur fyrir þá sem hafa iðnmenntun og reynslu úr atvinnulífinu.

2. maí 2014 : Auglýst eftir tilnefningum til Vaxtarsprotans

Vaxtarsproti ársins verður valinn í áttunda sinn í maí 2014. Í ár verðar viðurkenningar veittar föstudaginn 23. maí í tengslum við Nýsköpunartorgið. Hver sem er getur tilnefnt fyrirtæki sem hann/hún telur eigi erindi í þetta val. Frestur til að skila tilnefningum til forvals er til mánudagsins 12. maí n.k.