Fréttasafn



13. apr. 2021 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Áframhald á endurgreiðslum eykur líkur á sókn í nýsköpun

Á vef Fréttablaðsins er rætt við Sigríði Mogensen, sviðsstjóra iðnaðar- og hugverkasviðs SI, um afstöðu samtakanna til frumvarps til laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki sem fram kemur í umsögn samtakanna. „Fyrirsjáanleiki skiptir sköpum í rekstri fyrirtækja. Lagabreytingin mun auka líkurnar á að fyrirtæki blási til sóknar í nýsköpun hér á landi og að erlend fjárfesting leiti til Íslands.“ Í fréttinni segir að Samtök iðnaðarins styðji frumvarp Viðreisnar um að hækkun á endurgreiðslum vegna rannsókna og þróunar verði varanlega fest í lög en að áður hafi verið um tímabundið ákvæði að ræða. „Stjórnvöld þurfa að senda skýr skilaboð um að þau muni halda áfram á þessari braut. Þetta er fjárfesting í hagvexti framtíðar.“ 

Ríkisstjórn og þing fá hrós 

Í fréttinni bendir Sigríður á að í maí 2020 hafi stjórnvöld og Alþingi stigið skref í auknum stuðningi við nýsköpun með því að efla skattahvata vegna rannsókna og þróunar. „Ríkisstjórnin á hrós skilið fyrir þessar aðgerðir á tímum efnahagsóvissu og þingheimur allur fyrir mikinn stuðning við þær.“ Í fréttinni kemur fram að breytingarnar fólu í sér að endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar hjá stórum fyrirtækjum var hækkað úr 20 í 25% upp að 1,1 milljarði króna en hlutfallið sé allt að 35% hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum. 

Met slegið í fjárfestingu í nýsköpun á síðasta ári

Í fréttinni segir Sigríður að fjölmörg dæmi séu um fyrirtæki í hugverkaiðnaði sem réðust í auknar fjárfestingar við þessar breytingar enda séu þær hvati til vaxtar og að við það hafi ný og verðmæt störf orðið til, dæmi um þetta séu CCP og Nox Medical. „Sóknarleikur stjórnvalda hefur nú þegar skilað árangri. Það bendir margt til að á árinu 2020 hafi verið slegið met í fjárfestingu í nýsköpun hér á landi, en opinberar tölur um þetta liggja ekki enn fyrir,“ segir hún og bendir á að hugverkaiðnaður hafi skapað um 16% af útflutningstekjum þjóðarbúsins árið 2020. Þegar hún er spurð um fyrirkomulagið segir hún að Rannís verði að staðfesta að um nýsköpunarverkefni sé að ræða áður en fyrirtækin fái endurgreiðslu frá Ríkisskattstjóra.

Frettabladid.is, 12. mars 2021