Fréttasafn



20. apr. 2018 Almennar fréttir Mannvirki

Arkitektinn Stefan Marbach í Norræna húsinu

Arkitektinn Stefan Marbach, einn aðaleiganda svissnesku arkitektastofunnar Herzog & de Meuron, flytur fyrirlestur og veitir innsýn í valin verkefni á fundi í Norræna húsinu næstkomandi þriðjudag 24. apríl kl. 17.00. Það er Listaháskóli Íslands sem stendur fyrir fyrirlestrinum í samstarfi við Arkitektafélag Íslands, Hönnunarmiðstöð og SAMARK. Yfirskrift fundarins er Project Insights.

De-Meuren-1-590x826Stofnendur stofunnar,  Jacques Herzog og Pierre de Meuron, hlutu hin virtu Pritzker verðlaun árið 2001 en Stefan Marbach hefur starfað með þeim í rúman aldarfjórðung og verið einn aðaleigandi stofunnar frá árinu 2009. Hann stýrir stórum og fjölbreyttum verkefnum í Sviss, Bretlandi, Frakklandi, Svíþjóð, Rússlandi, Japan og Kína. Meðal þekktra verkefna sem hann hefur leitt er Ólympíuleikvangurinn í Peking í Kína (2008) og Nýi íþróttaleikvangurinn í Bordeaux í Frakklandi (2015).

Stefan Marbach er hér á landi til þess að dæma lokaverkefni BA nemenda í arkitektúr við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands. 

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Hér er hægt að lesa nánar um Herzog & de Meuron.

Ljósmynd: Adriano A. Biondo / biondopictures