Fréttasafn



13. mar. 2018 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Bakaralandsliðið keppir í Danmörku

Íslenska bakaralandsliðið tekur þátt í Nordic Bakery Cup 2018, sem fram fer í Herning í Danmörku dagana 17. – 19. mars næstkomandi. Liðið skipa Þórey Lovísa Sigurmundsdóttir, bakari hjá Sandholt, sem lagar rúlluð deig og brios, Birgir Þór Sigurjónsson, yfirbakari hjá Brauð & co, sem lagar brauð, og Ásgeir Þór Tómasson, bakarameistari og fagstjóri bakaradeildarinnar í Hótel- og matvælaskólanum, sem lagar skrautstykki. Þemað í keppninni er Sport. Daníel K. Ármannsson, yfirbakari hjá IKEA, sem er annar frá hægri á myndinni verður dómari.

Liðið er búið að æfa saman og í sitthvoru lagi síðan í október, bæði á sínum vinnustöðum og í bakaríi Hótel- og matvælaskólans um kvöld og helgar. Hópurinn heldur utan föstudaginn 16. mars.

Á æfingatímanum hefur liðið fengið handleiðslu frá mörgum meisturum, má þar nefna Jimmy Griffin, írskum stórmeistara, sem tók fyrir rúlluð deig og súrdeigsbrauð með liðinu í Hótel- og matvælaskólanum. Jimmy hefur dæmt margar af stærri keppnum í bakstri og voru leiðbeiningar hans mikilvægar fyrir svo ungt lið eins og bakaralandsliðið er.

Christophe Debersee, heimsmeistari í skrautstykkjabakstri frá 2008, kom og leiðbeindi liðinu ásamt því að halda námskeið fyrir bakara og nemendur bakaradeildarinnar sem voru að undirbúa sig fyrir nemakeppni í bakstri. Var heimsókn hans stórkostleg upplifun enda er maðurinn hokinn af reynslu og hefur þjálfað mörg landslið síðastliðin 10 ár.

Kennslubakaríinu í Hótel- og matvælaskólanum var stillt upp eins og um keppnissvæði væri að ræða, þ.e.a.s. ekki mátti vinna nema á takmörkuðu svæði þar sem uppmæld lengd og breidd vinnuborða var eins og verður á keppnissvæðinu. Æfingar hafa gengið vel og hafa margir komið að allri undirbúningsvinnu.

Dagskrá keppninnar í Herning er eftirfarandi:

Laugardagur 17.03.2018
Kl. 16:00 – 17:00, keppendur koma sér fyrir í keppnisbakaríum.
Kl. 17:30 – 19:00, keppni stendur yfir.

Sunnudagur 18.03.2018
Kl. 07:00, skrautstykkjabakarar byrja og vinna til kl. 14:00.
Kl. 09:00, hinir tveir byrja og klára kl. 16:00.

Það verður hægt að fylgjast með liðinu á bakarasnappinu undir heitinu landslidbakara.