Fréttasafn



6. okt. 2021 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Borgarfulltrúi lýgur um fund sem átti sér ekki stað

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir í Morgunblaðinu að Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi hafi logið blákalt að sínum umbjóðendum í gær þegar hún hélt því fram að borgin hefði fundað með Samtökum iðnaðarins um 10 milljarða stafræna uppbyggingu borgarinnar. Sigurður þvertekur fyrir að þessi fundur hafi átt sér stað. 

Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að Dóra hafi haldið því fram í umræðum vegna tillögu um útboð verkefnisins að borgin hefði fundað með samtökunum til að útskýra „misskilning um frétt sem birtist í Morgunblaðinu“ og sagt það liggja fyrir að fólk væri „mun sáttara í dag og skildi betur hvernig stæði á þessu öllu saman, og er það vel“. 

Borgarstjóri hefur ekki séð sér fært að ræða við SI

Sigurður segir í fréttinni að Dóra með þessum orðum ljúgi blákalt að sínum umbjóðendum: „Fyrsta lygin er sú að fundur hafi átt sér stað. Í öðru lagi er logið til um efni slíks fundar og í þriðja lagi er logið til um niðurstöðu á slíkum fundi. Í því samhengi er áhugavert að hugsa til þess að fyrir viku eða tveimur óskuðum við sérstaklega eftir fundi með borgarstjóra til að ræða þessi mál. Hann hefur ekki séð sér fært að ræða við okkur um þetta mál sem snýst um 10 milljarða króna útgjöld á næstu þremur árum.“ 

Hugbúnaðarhús borgarinnar á pari við stærstu upplýsingatæknifyrirtæki landsins

Í Morgunblaðinu segir að Samtök iðnaðarins hafi óskað eftir fundi með borgarstjóra vegna verkefnis borgarinnar um uppbyggingu stafrænna innviða en ekki hafi orðið við þeirri ósk: „Borgin ætlar að ráða allt frá 65 og upp í 109 manns í hugbúnaðarhús borgarinnar til þess að efla stafræna stjórnsýslu. Þetta yrði á pari við eða stærra en stærstu upplýsingafyrirtæki landsins.“

Í fréttinni kemur jafnframt fram að tillaga um útboð allra þátta verkefnisins hafi verið felld í borgarstjórn í gær. 

Morgunblaðið / mbl.is, 6. október 2021.

Morgunbladid-06-10-2021-2-


Fréttablaðið, 6. október 2021.

Vísir, 6. október 2021.

Bylgjan, 7. október 2021.