Fréttasafn



24. jún. 2019 Almennar fréttir Efnahagsmál

EES hefur þjónað hagsmunum Íslands mjög vel

EES hefur þjónað hagsmunum Íslands mjög vel. Það ætti að vera óumdeilt að samningurinn hefur verið afar mikilvægur fyrir íslenskt atvinnulíf og er hornsteinn okkar alþjóðlegu tengsla. Ég vona að samningurinn verði áfram það afl verðmætasköpunar sem hann hefur verið á síðustu 25 árum. Þetta segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, í niðurlagi greinar sinnar um EES-samninginn sem birt er í Fréttablaðinu í dag undir yfirskriftinni Grundvöllur lífskjara

Landsframleiðsla á mann aukist um 71% á tíma samningsins

Guðrún segir að EES-samningurinn hafi reynst vera einn mikilvægasti samningur sem Ísland hafi gert á lýðveldistímanum. Hann hafi opnað atvinnulífi aðgang að mikilvægu markaðssvæði, tryggt frjálsara flæði vara, fjármagns og þjónustu auk þess að tryggja okkur rétt til búsetu, atvinnu og náms í öðrum ríkjum. Samningurinn hafi fært okkur úr gjaldeyrishöftum sem höfðu þá varað í rúm 60 ár hér á landi. Hún segir Íslendinga hafa notið ríkulega af kostum EES. Á tíma samningsins hafi landsframleiðsla og ráðstöfunartekjur einstaklinga aukist umtalsvert samhliða stórauknum útflutningi. Landsframleiðsla á mann, sem sé mælikvarði á efnahagslega velmegun, hafi aukist um 71% á tíma samningsins.

Útflutningur meira en þrefaldast á tíma samningsins

Þá segir Guðrún í greininni að lífsgæði Íslendinga byggi á frjálsum viðskiptum við önnur lönd og með minni viðskiptahindrunum aukist viðskipti. EES-samningnum hafi fylgt aukin viðskipti milli Íslands og EES-svæðisins. Hlutur aðildarlanda samningsins í vöruútflutningi Íslendinga hafi vaxið umtalsvert og er nú um 80%. Útflutningur vöru og þjónustu frá Íslandi hafi meira en þrefaldast á tíma samningsins. Aukin utanríkisviðskipti hafi síðan aukið hagvöxt og velmegun til heilla fyrir fyrirtæki og heimili í landinu.

Hér er hægt að lesa grein Guðrúnar í heild sinni.