Fréttasafn



1. okt. 2018 Almennar fréttir Menntun

Fékk silfurverðlaun í rafeindavirkjun á EuroSkills

Ásbjörn Eðvaldsson hlaut silfurverðlaun á EuroSkills keppninni í Búdapest sem lauk á föstudaginn. Ásbjörn keppti í rafeindavirkjun og hlaut 710 stig sem er framúrskarandi árangur. Það voru 6 keppendur sem tóku þátt í greininni. Verkiðn – Skills Iceland er aðili að WorldSkills Europe sem heldur EuroSkills og hefur verið þátttakandi á vettvangi samtakanna og systursamtakanna WorldSkills frá árinu 2007.

Átta keppendur frá Íslandi tóku þátt í EuroSkills sem fór fram dagana 26.-28. september. Íslenski hópurinn fékk þrjár viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur eða „medal of excellence“ auk silfurverðlaunanna, en viðmiðunarmörk til að ná því eru 700 stig. Haraldur Örn Arnarson prentsmiður hlaut 704 stig og varð í 6. sæti af 14 keppendum, Jón Þór Einarsson rafvirki hlaut 700 stig og varð í 8. sæti af 15 keppendum og Kristinn Gísli Jónsson matreiðslumaður hlaut einnig 700 stig og varð í 10.-12. sæti af 23 keppendum. Auk þess kepptu Finnur Ingi Harrýsson í málmsuðu, Sigurður Borgar Ólafsson í framreiðslu, Þórey Lovísa Sigurmundsdóttir í bakstri og Þröstur Kárason í trésmíði.

Um er að ræða besta árangur íslenskra þátttakenda á Evrópumóti til þessa. Keppendurnir voru valdir af hverri grein til að keppa fyrir Íslands hönd og hafa verið undir handleiðslu þjálfara frá því í vor

Hægt er að skoða keppnina og þátttöku íslensku keppendanna á Facebook- og Instagram-síðum Verkiðnar: https://www.facebook.com/Verkidn og https://www.instagram.com/idngreinarislands

Hopmynd-vid-opnun-euroskillsÞátttakendur ásamt liðsstjóra, f.v. Þórey, Ásbjörn, Sigurður Borgar, Svanborg liðsstjóri, Þröstur, Kristinn, Haraldur Örn, Jón Þór og Finnur Ingi.

Dsc01971Ásbjörn Eðvaldsson, silfurverðlaunahafi í rafeindavirkjun á Euroskills 2018.

Asbjorn-og-faninn