Fréttasafn



19. okt. 2020 Almennar fréttir Félag ráðgjafarverkfræðinga Mannvirki Nýsköpun

Fundaröð um nýsköpun og nýjar lausnir í mannvirkjagerð

Yngri ráðgjafar sem er deild í Félagi ráðgjafarverkfræðinga standa fyrir rafrænni fundaröð um nýsköpun og nýjar lausnir í mannvirkjagerð í október og nóvember. Fundirnir eru opnir öllum félagsmönnum á mannvirkjasviði SI. Hægt er að skrá sig á fundina hér fyrir neðan og fá þeir sem skrá sig sendan Zoom-hlekk fyrir hvern fund.

  • Fundur um Planitor verður haldinn fimmtudaginn 22. október kl. 09.00. Kynnar: Guðmundur Kristján Jónsson og Jökull Sólberg, stofnendur Planitor. Markmið Planitor er að bjóða upp á stafrænar lausnir sem leysa ólíkar áskoranir á sviði byggingar- og skipulagsmála. Hugbúnaðarlausnir Planitor munu stuðla að skilvirkari ferlum, auka yfirsýn, draga fram og birta rauntímaupplýsingar og bjóða upp á stafræna miðlun upplýsinga. Vörur Planitor eru Fundargerðargátt Planitor, Vaktarinn og Skipulag í kynningu. Hér er hægt að skrá sig á fund um Planitor.
  • Fundur um Arkio verður haldinn miðvikudaginn 4. nóvember kl. 15.00. Kynnir: Hilmar Gunnarsson, stofnandi ArkioArkio er hönnunarhugbúnaður sem gerir hönnuðum kleift að hanna byggingar eða borgarskipulag með einföldum hætti með VR og AR tækni. Hér er hægt að skrá sig á fund um Arkio.

  • Fundur um BIM verður haldinn miðvikudaginn 25. nóvember kl. 09.00. Kynnar: Hjörtur Sigurðsson, framkvæmdastjóri VSB verkfræðistofu, og Ingibjörg Birna Kjartansdóttir, BIM/VDC þróunarstjóri Ístaks. Upplýsingalíkön mannvirkja er íslenska heitið á hugtakinu Building Information Modeling (BIM). Þetta er aðferðafræði við undirbúning, hönnun, byggingu og rekstur mannvirkja þar sem hönnuðir setja upp rafræn, þrívíð og hlutbundin líkön af mannvirkjum. Eitt af markmiðunum með notkun BIM er að samþætta hönnunarferli mannvirkja og hönnunargögn betur til að auka gæði, nákvæmni og áreiðanleika þeirra. Allir aðilar verkefnis vinna með rafrænar samræmdar upplýsingar í sameiginlegu upplýsingalíkani. Hér er hægt að skrá sig á fund um BIM.