Fréttasafn



27. mar. 2023 Almennar fréttir Mannvirki

Fundur og sýning í Hofi um öryggismál í mannvirkjagerð

Meistarafélag byggingarmanna á Norðurlandi, Samtök iðnaðarins, Byggiðn og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi Eystra efna til fundar um öryggismál í mannvirkjagerð í Hofi á Akureyri fimmtudaginn 30. mars sem hefst kl. 16.00. Í anddyri Hofs verður sýning Johan Rönning og Ferro Zink frá kl. 14.30 á öryggisbúnaði í mannvirkjagerð.

Dagskrá

  • Setning og fundarstjórn - Björg Ásta Þórðardóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI
  • Staðreyndir um öryggismál í mannvirkjagerð - Axel Ólafur Pétursson, sérfræðingur/teymisstjóri mannvirkjateymis og Þórdís Huld Vignisdóttir, leiðtogi straums vettvangsathugana hjá Vinnueftirliti ríkisins
  • Öryggismál í appi - Ólafur Ástgeirsson, leiðtogi bygginga- og mannvirkjagreina hjá Iðunni - fræðslusetri
  • Hvernig fá fyrirtæki forvarnarverðlaun VÍS? - Hannes Garðarsson, skrifstofu-, öryggis- og gæðastjóri hjá Rafeyri
  • Öryggismál eru umhverfismál - Ólafur Ragnarsson, forstjóri og eigandi Byggingarfélagsins Hyrnu
  • Öryggisskóli að sænskri fyrirmynd - Friðrik Ág. Ólafsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI

Hér er hægt að skrá sig.

Auglysing_loka_1679933771518