Fréttasafn



4. des. 2018 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Menntun

Fundur um menntamál í iðnaði

Fella þurfti fundinn niður en áformað er að boða til nýs fundar í byrjun næsta árs. 


Framleiðsluráð SI stendur fyrir fundi fyrir félagsmenn um menntamál í iðnaði,  í byrjun næsta árs, miðvikudaginn 16. janúar kl. 11.30-13.00 í Hyl í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35. Markmiðið með fundinum er að sýna fram á mikilvægi þess að starfsmenn fái góða þjálfun til þeirra verka sem þeim er ætlað að sinna og miðla reynslu þeirra fyrirtækja sem standa vel að slíkum málum. Á fundinum verður farið yfir menntastefnu Samtaka iðnaðarins, símenntun í iðnaði og raunfærnimat,  ásamt vel heppnuðum menntaverkefnum hjá fyrirtækjum innan raða SI. Fundarstjóri er Jóhanna Vigdís Arnardóttir, verkefnastjóri í menntamálum hjá SI.

Dagskrá

  • Menntastefna Samtaka iðnaðarins – Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, sviðsstjóri mennta- og mannauðsmála SI
  • Reynslusögur frá félagsmönnum – Snorri Jónsson, Dominos. Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir, Prentmet. Hekla Gunnarsdóttir, Norðurál
  • Umræður

Áhugasamir skrái sig á fundinn í síðasta lagi þriðjudaginn 11. desember. Boðið verður upp á hádegishressingu.

Hér er hægt að skrá sig.

Framleidslurad-SI