Fréttasafn



27. feb. 2023 Almennar fréttir Menntun

Fundur um stórtæka uppbyggingu starfsnáms

Mennta- og barnamálaráðherra boðar til morgunverðarfundar um stórtæka uppbyggingu starfsnáms í framhaldsskólum landsins fimmtudaginn 2. mars kl. 8:30-10:00 í Nauthóli.

Í tilkynningu segir að samkvæmt mati mennta- og barnamálaráðuneytisins á húsnæðisþörf í framhaldsskólum næstu tíu árin muni nemendum í starfsnámi fjölga verulega og nemendum í bóknámi fækka. Áform um uppbyggingu starfsnámsaðstöðu séu stórtæk og horfi til lengri tíma til að mæta þessari þörf.

Fundurinn hefst á morgunhressingu og kynningu Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, á áformunum. Í kjölfarið fara fram pallborðsumræður með fundargestum og fulltrúum skólameistara, framhaldsskólanema, atvinnulífsins, Alþýðusambandsins og ráðuneytisins. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, tekur þátt í umræðunum.

Fundurinn er opinn öllum áhugasömum og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Honum verður streymt á Fésbókarsíðu ráðuneytisins. Þau sem mæta á staðinn eru beðin um að skrá sig fyrir kl. 12 á miðvikukudag, 1. mars: Skráning á morgunverðarfund

Frekari upplýsingar á vef Stjórnarráðsins.

Fundur-02-03-2023