Fréttasafn



9. mar. 2017 Almennar fréttir

Guðrún Hafsteinsdóttir endurkjörin formaður SI

Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í morgun var Guðrún Hafsteinsdóttir, Kjörís, endurkjörin formaður með 91% greiddra atkvæða. Guðrún verður formaður Samtaka iðnaðarins fram til Iðnþings 2018.

Alls gáfu átta kost á sér til almennrar stjórnarsetur og var kosið um fjögur sæti. Þeir sem  setjast í stjórn Samtaka iðnaðarins til næstu tveggja ára:

  • Katrín Pétursdóttir – Lýsi  
  • Lárus Andri Jónsson – Rafþjónustan
  • Ragnar Guðmundsson – Norðurál
  • Sigurður R. Ragnarsson – ÍAV

 Fyrir í stjórn Samtaka iðnaðarins eru:

  • Agnes Ósk Guðjónsdóttir – GK snyrtistofa
  • Árni Sigurjónsson – Marel  
  • Guðrún Jónsdóttir – Héðinn
  • Egill Jónsson – Össur  
  • Eyjólfur Árni Rafnsson – Eignarhaldsfélagið Birta