Fréttasafn



20. mar. 2019 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Háskólanemar fá viðurkenningar

Fjórir háskólanemar fengu hvatningarviðurkenningar á Nýsköpunarmóti Álklasans sem haldið var í Hátíðarsal Háskóla Íslands í gær. Í erindum sem flutt voru á mótinu var meðal annars rætt um snjallvæðingu, loftslagsmál og hringrásarhagkerfið og endurspegluðust þær áherslur í verkefnunum sem fengu viðurkenningarnar. Þetta er í þriðja sinn sem Nýsköpunarmót Álklasans er haldið en að því standa Álklasinn, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtök iðnaðarins og Samál. 

Nemendurnir sem fengu hvatningarviðurkenningar í ár:  

  • Caroline Mary Medion (HR): Improving Current Efficiency in L-T Aluminum Electrolysis with Vertical Inert Electrodes. 
  • Diljá Heba Petersen (HÍ): Endurnýtingarmöguleikar slaggs frá kísiljárnframleiðslu. 
  • Eymar Andri Birgisson (HR): Sjálfvirknivæðing á kerviðgerðum með tölvusjón.
  • Hinrik Már Rögnvaldsson (HÍ): Flokkunarmódel planaðrar áltöku.

Að hvatningarviðurkenningunni standa fyrirtækin, Mannvit, Efla, Hamar, Snókur, Rio Tinto, Alcoa Fjarðaál, Norðurál og Landsbankinn, en auk þess bjó Álverið í Garðabæ, sem sérhæfir sig í yfirborðsmeðhöndlun á áli, til álviðurkenningarskildi handa viðurkenningarhöfum. 

Á Nýsköpunarmóti Álklasans fyrir tveimur árum síðan var íslenski álbíllinn Ísar frumsýndur. Gestum gafst kostur á að skoða bílinn sem hefur tekið miklum breytingum frá frumsýningu. Álklasinn var stofnaður árið 2015 og samanstendur af um 40 fyrirtækjum og stofnunum í ál- og kísiliðnaði. 

Á myndinni hér fyrir ofan eru handhafar hvatningarviðurkenninganna: Brjánn Jónsson faðir Diljár Hebu Petersen (HÍ), Caroline Mary Medino (HR), Eymar Andri Birgisson (HR) og Hinrik Már Rögnvaldsson (HÍ). 

Verdlaunahafar1Handhafar hvatningarviðurkenningar Álklasans ásamt fulltrúum nokkurra styrktaraðila, talið frá vinstri, Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir (Álklasinn), Gunnar Sv. Gunnarsson Mannviti, Brjánn Jónsson faðir Diljár Hebu Petersen (HÍ), Einar Friðgeirsson (Norðuráli) Brynjar Baldursson (Eflu), Caroline Mary Medino (HR), Sigurður Magnús Garðarsson (HÍ) Eymar Andri Birgisson (HR), Rannveig Rist (Rio Tinto) Hinrik Már Rögnvaldsson (HÍ), Magnús Þór Jónsson (Alcoa Fjarðaál) og Adrian Freyr Rodriguez (Hamar),

Ahorfendur

Ahorfendur2Nýsköpunarmót Álklasans var vel sótt.

IsarÍslenski álbíllinn Ísar hefur tekið miklum breytingum síðan hann var frumsýndur fyrst á Nýsköpunarmóti Álklasans fyrir tveimur árum.

DTEMeðal fyrirlesara var dr. Kristján Leósson, þróunarstjóri sprotafyrirtækisins DTE, sem sagði spennandi tíma framundan hjá fyrirtækinu enda stór markaður fyrir þann sjálfvirka greiningarbúnað sem fyrirtækið hefur þróað.