Fréttasafn



16. sep. 2021 Almennar fréttir Menntun

Hvatningarsjóður Kviku úthlutar styrkjum

Sex iðnnemar og átta kennaranemar hlutu styrki úr Hvatningarsjóði Kviku skólaárið 2021-2022. Hvatningarsjóður Kviku hefur það hlutverk að hvetja og styrkja ungt fólk til iðn- og kennaranáms. Markmið sjóðsins er að efla umræðu og vitund um mikilvægi iðn- og kennaranáms og þýðingu starfa sem því tengjast fyrir íslenskt atvinnulíf. Sjóðurinn er samstarfsverkefni Kviku, mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Samtaka iðnaðarins.

Ármann Þorvaldsson, aðstoðarforstjóri Kviku banka: „Það er yfirlýst stefna Kviku að hafa jákvæð langtímaáhrif á samfélagið. Samfélög sem leggja áherslu á hugvit og nýsköpun verða leiðandi á komandi árum að okkar mati og menntun því ein af grunnstoðum sem mikilvægt er að hlúa vel að.

Við ákváðum á sínum tíma að styðja við efnilega einstaklinga til iðn- og kennaranáms vegna þess að okkur þóttu þær námsgreinar ekki fá þá athygli sem þær áttu skilið og umsóknum í þær hafði farið fækkandi. Það er því gaman að sjá þá auknu aðsókn sem hefur orðið í bæði iðn- og kennaranám frá árinu 2018 þegar við byrjuðum með Hvatningarsjóðinn. Þegar fjöldi brautskráðra í iðnnámi er skoðaður kemur í ljós að á árunum 2018-2020 hefur orðið um 25% aukning. Einnig má nefna að á vorönn 2021 sótti rúmlega helmingur allra umsækjenda framhaldsskóla um í iðn- og starfsnámi samkvæmt upplýsingum frá Samtökum iðnaðarins. Þá hefur verið mikil aukning umsókna í kennaranám sl. ár og þá sérstaklega árið 2020 þegar metfjöldi sótti um. Þetta eru virkilega ánægjuleg tíðindi.“

Árni Sigurjónsson, formaður Samtaka iðnaðarins: „Samtök iðnaðarins vilja veg iðnnáms sem mestan enda mikilvægt að menntakerfið mæti þörfum atvinnulífsins og kröfum framtíðarinnar. Kvika banki hefur haft forystu um að hvetja og styrkja ungt fólk til iðnnáms á undanförnum árum og við hjá Samtökum iðnaðarins erum stolt af því að taka þátt í því mikilvæga verkefni. Við óskum öllum styrkþegunum til hamingju og óskum þeim velfarnaðar í því sem þeir taka sér fyrir hendur í framtíðinni.“

Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra: „Hvatning af þessu tagi er mikilvæg, ekki aðeins fyrir þá einstaklinga sem eiga í hlut heldur felst í henni viðurkenning á samfélagslegu mikilvægi iðn- og kennaramenntunar í landinu. Á því sviði hafa stórkostlegar breytingar orðið á undanförnum árum, bæði kerfis- og viðhorfsbreytingar sem hafa aukið áhuga fólks á að sækja sér slíka menntun. Sú breyting er samfélaginu öllu til góðs.“

Eftirfarandi nemar hlutu styrk:

  • Anna Kristín Semey Bjarnadóttir, nemi í málaraiðn í Byggingatækniskólanum
  • Auður Björnsdóttir, nemi í húsgagnasmíði í Tækniháskólanum
  • Dan Theman Docherty, nemi á húsasmíðabraut í Tækniskólanum
  • Valgeir Jökull Brynjarsson, nemi í húsasmíði í Verkmenntaskólanum á Austurlandi
  • Þorri Líndal Guðnason, nemi í margmiðlunartækni og rafeindavirkjun í Tækniskólanum
  • Helgi Halldórsson, nemi í vélfræði í Verkmenntaskólanum á Akureyri
  • Rán Ragnarsdóttir, nemi í uppeldis- og menntunarfræði í Háskóla Íslands
  • Marinó Axel Helgason, nemi í meistaranámi í grunnskólakennslu í Háskóla Íslands
  • Bjartur Sólveigar Gunnarsson, nemi í grunnskólakennslu yngri barna í Háskóla Íslands
  • Árnína Björt Heimisdóttir, nemi í meistaranámi á menntavísindasviði í Háskóla Íslands
  • Hafdís Gígja Björnsdóttir, nemi í meistaranámi í kennsluréttindum í grunnskólum í Háskólanum á Akureyri
  • Kristín Baldey Rúnudóttir, nemi í meistaranámi í kennslufræðum í Háskóla Íslands
  • Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir, nemi í meistaranámi í kennslufræðum í Háskóla Íslands
  • Viktor Ingi Jónsson, nemi á grunnskólakjörsviði í Háskólanum á Akureyri

1C0A6564Á myndinni eru styrkþegar, talið frá vinstri í efstu röð: Þorri Líndal Guðnason, Bjartur Sólveigar Gunnarsson og Dan Theman Docherty. Í miðjuröð: Hafdís Gígja Björnsdóttir, Kristín Baldey Rúnudóttir, Árnína Björt Heimisdóttir og Auður Björnsdóttir. Í neðri röð: Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir, Valgeir Jökull Brynjarsson, Anna Kristín Semey Bjarnadóttir og Marinó Axel Helgason. Á myndina vantar Rán Ragnarsdóttur og Viktor Inga Jónsson.

1C0A6638

1C0A6583

1C0A6643

1C0A6578