Fréttasafn



22. feb. 2019 Almennar fréttir

Iðnþing 2019 framundan

Skráningar standa yfir á Iðnþing 2019 sem fram fer í Silfurbergi í Hörpu fimmtudaginn 7. mars næstkomandi kl. 14.00. Hér er hægt að skrá sig á þingið. 

Yfirskrift þingsins að þessu sinni er Íslenskur iðnaður í fortíð, nútíð og framtíð. Íslenskur iðnaður hefur verið órjúfanlegur hluti af sögu Íslands og verður þess minnst nú þegar 25 ár eru liðin frá stofnun Samtaka iðnaðarins. Á þinginu verður horft á það sem áunnist hefur í áranna rás, varpað verður upp myndum af stöðu dagsins í dag, auk þess sem rýnt verður í framtíðina sem er rétt handan við hornið. Þá munu forkólfar íslensk iðnaðar segja frá sinni sýn á framtíðina.

Dagskrá

  • Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI
  • Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands
  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, stýrir umræðum um viðfangsefni iðnaðar.

Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar.

Hér er hægt að skrá sig á þingið. 

Aðalfundur SI verður haldinn í Kaldalóni í Hörpu kl. 10.00. 

Hér er hægt að nálgast dagskrá aðalfundar og skrá sig.


Auglysing-med-dagskra

Auglysing-med-ollum