Fréttasafn



9. nóv. 2023 Almennar fréttir Mannvirki Menntun

Íslensku menntaverðlaunin afhent á Bessastöðum

Forseti Íslands afhenti Íslensku menntaverðlaunin á Bessastöðum og var verðlaunaafhendingin sýnd á RÚV í gærkvöldi. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, afhenti málarabraut Tækniskólans verðlaun fyrir framúrskarandi iðn- og verkmenntun vegna þróunar einstaklingsmiðaðs náms í málaraiðn. Brautinni hefur á undanförnum árum verið umbylt með þeim hætti að nemendur geta nú tekið námið á eigin hraða, með hliðsjón af hæfniviðmiðum. Kennarar brautarinnar hafa unnið þrekvirki við að semja ítarlegar verkefnalýsingar, kennslumyndbönd og annað efni til stuðnings. Fyrir vikið getur námið farið fram hvar sem er og nemendum á landsbyggðinni er þannig gert kleift að stunda málaranám úr heimabyggð. Aðrir handhafar Íslensku menntaverðlaunanna eru Framhaldsskólinn í MosfellsbæVíkurskóla í ReykjavíkZelsíus í Árborg og Jafnréttisskóli Reykjavíkur

20231107-162757-mummiluSigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, afhenti verðlaun fyrir framúrskarandi iðn- og verkmenntun.

20231107-menntaverdlaunin_-mummilu-5Verðlaun fyrir framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur hlaut Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ fyrir þróun verkefnamiðaðra kennsluhátta og leiðsagnarnáms. Skólinn hefur verið í fararbroddi á þessu sviði en þar er lögð áhersla á að virkja nemendur til þátttöku og koma til móts við þarfir þeirra með fjölbreyttum og skapandi aðferðum.

20231107-menntaverdlaunin_-mummilu-8Verðlaun fyrir framúrskarandi kennslu hlaut Fiona Elizabeth Oliver, kennari við Víkurskóla í Reykjavík. Víkurskóli er nýsköpunarskóli og Fiona hefur tekið virkan þátt í þróun skólans og verið verkefnastjóri um innleiðingu og þróun leiðsagnarnáms, en námsmat er eitt af helstu áhugasviðum hennar.

20231107-menntaverdlaunin_-mummilu-6-1-Verðlaun fyrir framúrskarandi þróunarverkefni hlaut Zelsíus í Árborg en félagsmiðstöðin hefur í samstarfi við velferðarþjónustu sveitarfélagsins lyft grettistaki við að rjúfa félagslega einangrun barna og unglinga. Verkefnið sýnir mikilvægi þverfaglegs samstarfs til að koma til móts við börn eins snemma og unnt er.

20231107-menntaverdlaunin_-mummilu-9Hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna 2023 hlaut Jafnréttisskóli Reykjavíkur fyrir ómetanlegt starf við að miðla þekkingu til starfsfólks leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva. Skólinn veitir ráðgjöf og stuðning varðandi ýmis málefni sem varða jafnréttismenntun, mannréttindi og kynheilbrigði. Starfið nýtist ekki aðeins börnum í höfuðborginni heldur kennurum og öðrum uppalendum óháð búsetu með aðgangi að rafrænni verkfærakistu sem skólinn hefur byggt upp. Jafnréttisskólinn var stofnaður árið 2013 og á því tíu ára afmæli í ár.

Markmið Íslensku menntaverðlaunanna er að vekja athygli á og hefja til vegs í samfélaginu það metnaðarfulla og vandaða starf sem unnið er með börnum og ungmennum á öllum skólastigum.

Á vef forseta Íslands er hægt að nálgast ávarp forseta.

Á vef RÚV er hægt að horfa á afhendingu verðlaunanna. 

Myndasafn frá verðlaunaathöfninni.

RÚV, 9. nóvember 2023.