Fréttasafn



31. des. 2020 Almennar fréttir Nýsköpun Starfsumhverfi

Jákvæð teikn á lofti

Árni Sigurjónsson, formaður SI, segir jákvæð teikn á lofti í grein sinni í áramótablaði Morgunblaðsins K oma tímar, koma ráð. Hann segir að þrátt fyrir erfiða stöðu í árslok séu jákvæðu fréttirnar þær að farsóttir séu tímabundið ástand og samfélög og hagkerfi rísi jafnan upp að loknu slíku tímabili með kröftugum hætti. Hið litla og fremur einsleita íslenska hagkerfi sé viðkvæmara en flest önnur fyrir þeim miklu áföllum sem átt hafi sér stað á árinu. „Af sömu rótum getum við vænst þess að viðspyrnan kunni af þessum sökum að verða hraðari á Íslandi en víða annars staðar þegar veiran gefur eftir og við náum aftur vopnum okkar. Þá eru bólusetningar til varnar veirunni að hefjast sem gefa góð fyrirheit um framhaldið. Þó það glitti í ljósið við enda ganganna, skulum við engu að síður stilla væntingum í hóf um skjótan viðsnúning. Allt hefur sinn tíma, þó öll séum við orðin óþreyjufull og langþreytt á stöðunni. En teiknin eru sannarlega jákvæð, höldum áfram einbeitingunni og þá mun okkur farnast vel.“

Þá segir Árni í grein sinni að áföll í efnahagslífi leiði gjarnan af sér bylgjur nýsköpunar, sem hafi sannarlega fengið aukna og verðskuldaða athygli á árinu. Hugverkaiðnaður – fjórða stoðin – sem sé nú þegar orðin öflug stoð í gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins, sé grunnur að auknum stöðugleika og hagvexti til framtíðar. „Ekki þarf að fjölyrða um að við munum áfram byggja á sterkum en sveiflukenndum stoðum sjávarútvegs, orkusækins iðnaðar og ferðaþjónustu, en nú sem aldrei fyrr þurfum við að leggjast á eitt við að skapa nýjar útflutningsgreinar og aukin verðmæti með nýsköpun sem byggir á ótakmörkuðum auðlindum, hvort sem það er af nýjum rótum eða í rótgrónum greinum. Fjórða stoðin mun skapa verðmæt störf sem við þurfum svo nauðsynlega á að halda. Þrátt fyrir erfiða stöðu er jarðvegur nýsköpunar frjór og uppskeran kann að verða ríkuleg ef rétt verður á spilum haldið.“

Árni segir að telja megi ljóst að hagkerfið sem muni koma út úr faraldrinum verði annað en það sem var fyrir. „Þróun sem þegar var hafin hefur orðið mun hraðari vegna faraldursins og tæknilausnir hafa gert okkur kleift að halda úti eins hefðbundnu samfélagi og unnt er í ljósi aðstæðna. Höfum það í huga þegar við hefjumst handa við að reisa við efnahaginn. Þegar við nú kveðjum árið þar sem væntumþykja var helst sýnd með því að halda sig fjarri eða í gegnum stafræna miðla í stað hefðbundinna vinafunda eða faðmlaga, skulum við taka með okkur í veganesti fyrir nýja árið samstöðuna, framfarirnar og þær góðu hugmyndir sem urðu til á þessum fordæmalausu tímum. Sá lærdómur mun nýtast okkur vel í þeim mikilvægu verkefnum sem við ætlum að takast á við og leysa.“

Hér er hægt að lesa grein Árna í heild sinni.

Morgunblaðið, 31. desember 2020.