Fréttasafn



11. jan. 2016 Iðnaður og hugverk

Keppni í nýsköpun vistvæna matvæla 2016 - kallað eftir keppnisliðum

Ecotrophelia Ísland er keppni meðal háskólanemenda í þróun vistvænna matvæla. Keppnin felst í að þróa markaðshæf, vistvæn matvæli eða drykki. Keppnin er haldin árlega í síðari hluta maí.

Nú stendur yfir skráning nemendahópa sem vilja taka þátt í keppninni í ár. Í hverjum hópi mega vera tveir til tíu nemendur, skráðir í nám á háskólastigi. Þeir mega vera úr hvaða námsbraut sem er en æskilegt að einhver í hópnum hafi þekkingu á matvælum. Nemendur mega ekki vera orðnir 35 ára. Sigurliðið hlýtur vegleg verðlaun og rétt til að taka þátt í alþjóðlegri keppni, Ecotrophelia Europe http://www.ecotrophelia.eu/ í París í október.

Leiðsögn við þróunarferlið

Þegar hóparnir hafa skráð sig til leiks fá þeir aðgang að kennsluefni á netinu sem leiðbeinir þeim um alla þætti sem viðkoma þróunarferlinu. Hópunum verður útveguð aðstaða til verklegra prófana.

Frestur til að skila skráningu er til 31. janúar 2016. Skráning sendist á netfangið: gunnthorunn.einarsdottir@matis.is .

Nánari upplýsingar eru á skráningareyðublaði .