Fréttasafn



23. maí 2022 Almennar fréttir Innviðir Mannvirki

Margir verktakar náð að útvega aðföng í tæka tíð

Rætt er við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra SI, í útvarpsfréttum RÚV um verðhækkanir aðfanga í byggingariðnaði en verð á aðföngum fyrir byggingariðnað hafa í sumum tilfellum margfaldast á síðustu mánuðum. Í fréttinni kemur fram að verkkaupar þurfi að huga sérstaklega vel að verksamningum um þessar mundir því vöruskortur vegna heimsfaraldurs og stríðsátaka hafi mikil áhrif. Þar kemur fram að hrávöruverð hafi hækkað mikið undanfarin misseri. Verð á stáli hafi fjórfaldast á stuttum tíma, verð á kopar hafi hækkað mikið sem skili sér í hækkun á verði raflagnaefnis. „Við höfum séð þetta líka varðandi timbur, þannig að þetta kemur víða við sögu í byggingariðnaðinum,“ segir Sigurður. Hann segir marga verktaka hafa sýnt fyrirhyggju og náð að útvega aðföng í tæka tíð svo verk tefjist ekki eða snarhækki í verði.

Þarf að finna nýja markaði fyrir stál og timbur

Í fréttinni kemur fram að stríðsátökin í Úkraínu hafi lokað stórum mörkuðum eins og Hvíta-Rússlandi og Rússlandi sem eru stórir markaðir fyrir stál og timbur. „Þannig að þá þarf að finna nýja markaði og það eru fleiri en við í þeirri stöðu þannig að það hefur þá áhrif bæði á afhendingartíma og verð. Þannig að það hefur verið mjög krefjandi skulum við segja og mikil áskorun að láta hlutina ganga.“ Ekki sjái fyrir endann á þessari stöðu. „Þó að svona vonandi muni rætast eitthvað úr að lokum en það er ekkert sem bendir til þess að það sé í kortunum akkurat núna.“

Byggingarvísitala endurspegla ekki hækkun á aðföngum

Einnig kemur fram í fréttinni að margir verksamningar sem gerðir hafa verið taki ekki tillit til þessara miklu verðhækkana. „Þeir eru oft miðaðir við byggingavísitölu sem að endurspegla ekki þá hækkun sem hefur orðið á verði aðfanga sem gerir það að verkum að verktakar geta lent illa í því sem eru með opna samninga í dag. Þannig að verkkaupar og þá kannski sérstaklega opinberir verkkaupar þurfa að íhuga þessa stöðu og sýna sveigjanleika og við vitum það reyndar að í nýlegum útboðum þá hafa verkkauparnir viljað setja inn endurskoðunarákvæði til þess að taka á þessu sem er mjög jákvætt mál.“ 

RÚV, 23. maí 2022.