Fréttasafn



13. nóv. 2017 Almennar fréttir Menntun

MH vann Boxið annað árið í röð

Lið Menntaskólans við Hamrahlíð vann Boxið – framkvæmdakeppni framhaldsskólanna í ár. Átta lið frá jafnmörgum framhaldsskólum kepptu til úrslita á laugardaginn í Háskólanum í Reykjavík. Lið Menntaskólans Í Reykjavík varð í öðru sæti og lið Fjölbrautarskóla Suðurlands í því þriðja.

Þetta er annað árið í röð sem lið MH ber sigur úr býtum í Boxinu. Vinningsliðið skipuðu: Gunnar Dofri Viðarsson, Árni Haukur Árnason, Birkir Jóhannes Ómarsson, Davíð Sindri Pétursson, Gunnar Dofri Viðarsson og Þorsteinn Jónsson.

Fyrirtækin sem lögðu þrautir fyrir nemendurna í ár eru öll aðildarfyrirtæki Samtaka iðnaðarins: Endurvinnslan, KeyNatura, Valka, Marel, Mannvit, Oddi, NoxMedical og Kóðinn/Skema. Meðal þeirra þrauta sem liðin glímdu við í ár var að hanna og smíða brú úr einu kílói af spaghettíi, forrita díóðulampa fyrir þörungaræktun, smíða bíl úr gosdrykkjadósum og greina gögn úr lygamæli. Þrautirnar eru hannaðar af sérfræðingum fyrirtækja úr ólíkum greinum iðnaðarins, með aðstoð fræðimanna HR og reyna á verklega og bóklega þekkingu, hugvit, verklag, útsjónasemi og samvinnu þátttakenda. 

27 lið tóku þátt í undankeppni Boxsins sem haldin var nýlega í framhaldsskólum landsins. Skólarnir sem kepptu til úrslita voru: Menntaskólinn við Hamrahlíð, Menntaskólinn í Kópavogi, Menntaskólinn að Laugarvatni, Menntaskólinn í Reykjavík, Tækniskólinn, Fjölbrautarskólinn í Breiðholti, Kvennaskólinn í Reykjavík og Fjölbrautaskóli Suðurlands

Þetta er í sjöunda sinn sem Boxið er haldið. Að keppninni standa Samtök iðnaðarins, Háskólinn í Reykjavík, mennta- og menningarmálaráðuneytið og Samband íslenskra framhaldsskólanema. Markmið með Boxinu er að kynna og vekja áhuga nemenda í framhaldsskólum á verk- og tækninámi og fjölbreyttum störfum í iðnaði.

Á myndinni er lið MH sem sigraði. Með þeim eru Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.

Myndaalbúm á Facebook.

Nánari upplýsingar um Boxið er að finna á www.ru.is/boxid

_D4M1113

_D4M1348