Fréttasafn



16. ágú. 2016 Gæðastjórnun

Snókur verktakar fær C- vottun fyrstur jarðvinnuverktaka

Snókur verktakar ehf. hefur staðist úttekt á öðru þrepi áfangaskiptrar gæðavottunar Samtaka iðnaðarins og hlotið C-vottun.

C-vottun SI staðfestir að reksturinn er í góðum höndum, studdur með öflugu verkbókhaldi, góðri skipulagningu og með mikla sérstöðu varðandi áherslur í öryggis- og heilbrigðismálum.

Snókur verktakar var stofnað 1. maí 2006 af Einari P. Harðarsyni og sonum hans, Hrafni Einarssyni og Kristmundi Einarssyni. 

Grunnur fyrirtækisins nær aftur nokkra áratugi, en Einar Pétur hefur alla sína tíð verði verktaki á sviði vélaverktöku. Þegar synir Einars ákváðu að koma af fullum þunga inn í reksturinn var fyrirtækið Snókur verktakar ehf. stofnað. 

Fyrirtækið er þjónustufyrirtæki á vélaverktakasviði, en það hefur á að skipa góðum tækjaflota sem það leigir út með vélamönnum. 
Einnig er fyrirtækið í jarðverktakastarfsemi ásamt því að reka sandblástursklefa og eigið verkstæði.

Nánar um gæðavottun SI