Fréttasafn



17. ágú. 2017 Almennar fréttir Nýsköpun

Ísland er í 8. sæti í nýsköpun

Ísland er í 8. sæti á listanum yfir þau ríki sem standa sig hvað best í nýsköpun samkvæmt nýrri mælingu European Innovation Scoreboard

Í stefnu Samtaka iðnaðarins í nýsköpunarmálum kemur fram að markmiðið sé að Ísland sé í fremstu röð þegar kemur að nýsköpun. Einn af mælikvörðunum er að Ísland verði orðið meðal fimm efstu landa í European Innovation Scoreboard árið 2020. Davíð Lúðvíksson, forstöðumaður stefnumótunar og nýsköpunar hjá SI, segir þessa mælingu sýna að það sé raunhæft markmið fyrir Ísland að vera í efsta flokknum fyrir árið 2020. Hann segir að breytingar hafi verið gerðar á mælikvörðunum sem sýnir Ísland í efri sætum en verið hefur í fyrri mælingum. Í mælingu síðasta árs þegar fyrri mælikvarðar voru notaðir var Ísland í 13. sæti.

Á listanum eru 37 ríki Evrópu og annarra nágrannaríkja sem eru mæld í samanburði við hvort annað. Sviss trónir á toppnum með hæsta skorið, þar á eftir kemur Svíþjóð, Danmörk, Finnland og Holland. Neðst á listanum er Úkraína. Í efstu sætunum eru sjö lönd sem teljast vera leiðtogar í nýsköpun, ríkin sem eru í sætunum þar fyrir neðan teljast vera sterk í nýsköpun og þar á meðal er Ísland. Önnur lönd sem teljast í sama flokki og Ísland eru Austurríki, Lúxemborg, Belgía, Noregur, Írland, Ísrael, Frakkland og Slóvenía.