Fréttasafn



  • Steinlagnir

16. sep. 2009

Steinlagnatækni, nýtt starfsmenntanám

Þessa dagana standa yfir skráningar í nýtt starfsmenntanám, steinlagnatækni, fyrir haustönn 2009. Kennslan hefst mánudaginn 26. október kl. 17.10. Námið, sem er á sviði skrúðgarðyrkju, er mótað og uppbyggt af Félagi skrúðgarðyrkjumeistara og Horticum menntafélagi ehf. í samstarfi við Tækniskólann.

Námið er hugsað fyrir starfsmenn sem vinna við ýmsan yfirborðsfrágang m.a. hellu- og steinlagnir. Kennslan fer fram í Skerjafirði, í húsnæði Tækniskólans, þar sem aðstaða til verk- og bóknáms er mjög góð. Sambærilegt nám hefur lengi verið í boði á hinum Norðurlöndunum en býðst nú í fyrsta sinn á Íslandi. Boðið verður upp á tvær námslotur í steinlagnatækni en hvor um sig er 125 kennslustundir. Fyrri lotan verður kennd í lok október fram í miðjan desember en sú seinni í janúar til loka febrúar 2010. Unnið er að því að fá námið viðurkennt til eininga og inn í fagnám til iðnréttinda í iðnskólakerfinu.

Námið kostar um 85.000 kr. en rétt er að geta þess að í mörgum tilfellum fá starfsmenn eða fyrirtæki stóran hluta námskostnaðar endurgreiddan frá fræðslusjóðum atvinnulífsins.  

Kennt verður á kvöldin, frá 17.10 – 21.50, þrjá daga í viku og fáeina laugardaga frá 9.00 – 12.50, þar sem áhersla er á verklegri kennslu. Kennarar koma m.a. frá Félagi skrúðgarðyrkjumeistara og eru sérfræðingar á sviði steinlagna.

Nánari upplýsingar um námið má finna á heimasíðu Tækniskólans www.tskoli.is og á heimasíðu Horticum menntafélags ehf. www.horticum.is einnig má senda fyrirspurnir á ave@tskoli.is og magnus@horticum.is eða hringja í síma 514 9601 og 822 0469.