Fréttasafn



  • Tomas-og-fyrsta-skoflustungan

4. nóv. 2010

Milljarðafjárfesting og 70 störf til frambúðar í nýrri kersmiðju

Fyrsta skóflustungan að nýrri kersmiðju Alcoa Fjarðaáls við Reyðarfjörð var tekin í dag, en stefnt er að því að hún verði tilbúin í ársbyrjun 2012.  Heildarfjárfesting vegna kersmiðjunnar er áætluð um 3,5 milljarðar króna. Meðan á framkvæmdatíma stendur munu 60-80 manns að jafnaði vinna við bygginguna en um 160 þegar umsvifin verða í  hámarki. Rekstur kersmiðjunnar mun skapa um 70 ný störf til frambúðar. Þetta er til viðbótar þeim 800 störfum sem þegar eru til staðar á álverssvæðinu við Reyðarfjörð.  

Verkfræðistofan Hatch hefur umsjón með byggingunni fyrir Fjarðaál í samstarfi við verkfræðifyrirtækið HRV. Ýmsir fleiri innlendir aðilar munu koma að verkinu. Samið hefur verið við Tandraberg á Eskifirði um jarðvinnu við kersmiðjuna og verið er að ganga frá samningum við aðra verktaka um næstu áfanga verksins.

Kersmiðjan skiptist í þrjá hluta, þ.e. kerfóðrunarbyggingu, kerbrotabyggingu og skrifstofubyggingu. Flatarmál bygginganna verður samtals rúmlega fjögur þúsund fermetrar. Ál er framleitt í 336 kerum í álveri Fjarðaáls og þau þarf að endurnýja á 5-7 ára fresti. Í nýju kerfóðrunarbyggingunni verður mögulegt að fóðra þrjú ker í einu. Þar verður einnig svæði til að kæla ker, viðgerðaraðstaða og geymslusvæði fyrir ýmsan búnað. Í kerbrotabyggingunni verða kerin hreinsuð og kerbrotunum komið fyrir í gámum. Þau verða  send í endurvinnslu til Bretlands þar sem þau enda sem hráefni í sement.