Fréttasafn



  • Málmfyrirtæki

15. sep. 2011

Fresti til umsókna um styrki til vinnustaðakennslu framlengt

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur ákveðið að framlengja frest til umsókna um styrki til vinnustaðakennslu til og með föstudagsins 23. september nk.

Ráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til fyrirtækja eða stofnana sem taka nemendur í vinnustaðanám. Markmið styrkjanna er að hvetja fyrirtæki eða stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla.

Umsækjendur skulu uppfylla almenn skilyrði gildandi reglugerðar um námssamninga og starfsþjálfun um hæfi til þess að annast nemendur í starfsnámi. Þeir skulu hafa á að skipa hæfum tilsjónaraðila með náminu og leggja fram áætlun um vinnustaðanámið og fyrirsjáanlega framvindu þess.

  • Styrkir geta numið allt að 20 þús. kr. á viku og eru veittir til 24 vikna að hámarki. Styrkur er greiddur eftir því sem námi vindur fram.
  • Umsóknum er skilað á sérstöku eyðublaði. Umsókn skal fylgja yfirlit um þjálfunaráætlun.
  • Nánari upplýsingar veitir Ólafur Grétar Kristjánsson í síma 545 9500 eða í tölvupósti áolafur.g.kristjansson@mrn.is
  • Umsóknarfresti hefur verið framlengt til 23. september 2011.