Fréttasafn



  • Boxið1

7. nóv. 2011

Framhaldsskólanemar hugsa út fyrir BOXIÐ

Boxið2BOXIÐ – framkvæmdakeppni framhaldsskólanna fór fram í Háskólanum í Reykjavík sl. laugardag. Átta skólar tóku þátt í æsispennandi keppni sem lauk með sigri Verslunarskóla Íslands. Markmið keppninnar sem nú var haldin í fyrsta sinn er að kynna og vekja áhuga á tækni, tækninámi og störfum í iðnaði.

Fjórtán framhaldsskólar víðsvegar af landinu sendu lið í undankeppni BOXINS en þau átta lið sem komust áfram í aðalkeppnina sl. laugardag voru frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum, Fjölbrautarskólanum í Garðabæ, Menntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum í Hamrahlíð, Boxið6Tækniskólanum, Menntaskólanum í Reykjavík, Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Verslunarskóla Íslands.

Keppnin fólst í þrautabraut með sex stöðvum og fóru liðin, sem hvert voru skipuð fimm einstaklingum, á milli brauta og leystu ólíkar þrautir á hverjum stað. Þrautirnar sjálfar reyndu bæði á hugvit og verklag en þær voru útbúnar af fyrirtækjum úr ólíkum greinum iðnaðarins í samstarfi við fræðimenn Háskólans í Reykjavík.

Tvö stigahæstu liðin, Fjölbrautaskóli Suðurnesja og Verslunarskóli Íslands kepptu síðan til úrslita í æsispennandi lokaþraut sem lauk með sigri Verslunarskólans.Boxið8

Sigurliðið hlaut verðlaunabikar til eignar og hver liðsmaður Ipad en fyrir annað sæti hlutu liðsmenn Ipod nano. Að auki veittu fyrirtækin aukaverðlaun þeim liðum sem stóðu sig best, voru frumlegust eða skemmtilegust í þeirra þrautum. Keppnin tókst vel í alla staði og bæði þátttakendur og áhorfendur skemmtu sér vel.

Fyrirtækin sem komu að gerð þrautanna eru Betware, Ístak, Marel, Mentor, Promens, Ölgerðin og Össur. Stuðningsaðili framkvæmdakeppninnar er Margmiðlunarskólinn.

BOXIÐ er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Háskólans í Reykjavík og Sambands íslenskra framhaldsskólanema.

Hér má sjá myndband frá keppninni.

Boxið9     Boxið4
 Boxið3   Boxið5